Um Mig

Ég er stærðfræðikennari við Menntaskólann á Akureyri og hef verið að kenna þar síðan haustið 2004. Þar áður kenndi ég í tvö ár við Borgarhólsskóla á Húsavík. Á meðan ég kenndi þar tók ég kennsluréttindi við Háskólann á Akureyri til viðbótar við B.Sc. gráðuna sem ég fékk við rekstrardeild HA vorið 2001. Áður en ég hóf nám við HA tók ég stúdentspróf af eðlisfræðibraut við MA, þannig að segja má að hringnum sé lokið.

Ég bý, ásamt Rögnu systur, á Akureyri og mér líkar alveg ótrúlega vel að vera komin aftur.

Ég er ægilegur nörd innst inni (og víðar) og það sem mér finnst einna skemmtilegast að gera er að spila hlutverkaspil. Við systurnar, ásamt mökum, erum með góðan spilahóp núna, sem gengur undir viðurnefninu "Föruneyti Drekabananans". Þessi hópur hefur sallað niður dreka, risa, vampírur og allskonar ófreskjur. Alltaf þegar föruneytið er samansafnað á sama landshluta er spilað.

Ég hef líka voðalega gaman af tölvuleikjum, en þó ekki öllum. Í sérstöku uppáhaldi hjá mér eru The Sims (1 og 2) og Baldur's Gate (1 og 2). Ég get eytt óheyrilegum tíma í svoleiðis spil. Svo les ég töluvert og hef sérstakt dálæti á bókum Terry Pratchetts.

Þeir sem vilja ná í mig af einhverri ástæðu geta hvort sem er sent mér póst á valdis@gmail.com eða haft samband við mig á MSN sem valdisbj@hotmail.com.