Main | september 2001 »

21. ágúst 2001

Hananú!! Núna er mín búin að php-væða vefinn sinn!! Nú er aðeins um eina "template"-skrá að ræða og svo textaskrár sem innihalda þann texta sem er að finna á síðunum. Þetta þýðir m.a. að ég get látið sama efnið birtast á html hlutanum og flash hlutanum án mikilla vandamála.

To the End of the Universe and Beyond!!
--------

Sagði valdis kl. 18:12 | Skoðanir (0)

20. ágúst 2001

Jæja, nú hefur mín verið dugleg og kom upp myndasíðu á vefnum. Kíkið á myndasíðuna!! Fyrsti skammturinn inn á síðuna eru annars vegar myndir úr bústaðarferð TUT brautarinnar nú í vor, og hins vegar eru myndir sem ég hef tekið hér og þar, t.d. í útskriftarferðinni til London.

Ég mun bráðlega fara í það að uppfæra flash hlutann af vefnum svo að hann endurspegli almennilega það sem er í þessum hluta vefsins.
--------

Sagði valdis kl. 22:10 | Skoðanir (0)

18. ágúst 2001

Laugardagskvöld og ég hef ekkert mikið að gera, ákvað að uppfæra heimasíðuna mína dálítið. Ég var nefnilega að hjálpa Kristbjörgu að setja upp sitt eigið blogg og nú er hún komin með síðu. Kíkið endilega á Dagbók Properu. Ég bætti henni líka við á tenglasíðuna mína.

Í guðana bænum verið aðeins duglegri við að skrifa í gestabókina mína, ég gæti farið að halda að það komi enginn að skoða þetta.
--------

Sagði valdis kl. 19:48 | Skoðanir (0)

14. ágúst 2001

Jæja, nú er ég orðin 23ja, eld, eld, ævaforn. Við Kristbjörg héldum upp á afmælið saman og skruppum á djammið á laugardagskvöldið. Alltaf fjör á Kaffi Akureyri. Ég komst að því að ef maður á afmæli getur maður fengið alveg ofsalega vondan drykk ókeypis! Æi, jæja, það er nú hægt að svelgja áfenginu í sig þó það sé vont stundum.

Ég var að bæta gestabók við heimasíðuna mína. Endilega segið mér hvað ykkur finnst um hana.
--------

Sagði valdis kl. 09:41 | Skoðanir (0)

7. ágúst 2001

Ég er komin aftur í bæinn eftir að hafa farið til Húsavíkur með systrum mínum. Við fórum í hvalaskoðun á sunnudagskvöld og eftir langa, kalda siglingu sáum við loksins hnúfubakinn sem við vorum að leita að. Það var líka alveg hellingur af öðrum hvölum allt í kringum okkur. Ég var alveg klikkuð á myndavélinni og nú er filman komin í framköllun. Ef einhverjar myndir af henni eru nýtilegar þá ætla ég að skanna þær og setja þær inn næstu daga.
--------

Sagði valdis kl. 15:22 | Skoðanir (0)

3. ágúst 2001

Verslunarmannahelgin hefur nú gengið í garð og ég ákvað að setja inn eina seinustu uppfærsluna áður en ég fer út á djammið. Þeir sem hafa minna við að vera ættu endilega að skoða litabókina sem ég gerði. Hún er über schtrumpuð og er gerð með þeim hugsunarhætti að allt er vænt sem vel er blátt...
- Skoðið litabókina.
- Hlaðið bókinni niður og leikið ykkur heima (bara að un-zippa).
--------

Sagði valdis kl. 19:53 | Skoðanir (0)

Jæja, boys and girls, núna er þetta komið í lag og lítur meira að segja út eins og ég vildi. Þetta sýnir bara það fornkveðna að ég er algjör snillingur (hógværðin, sko). Jæja, þá er maður búinn að leika sér að þessu skemmtilega og þá er eins gott að fara að gera eitthvað af viti. Það er slatti sem maður þarf að gera fyrir helgina.
Skemmtið ykkur vel yfir Versló!
--------

Sagði valdis kl. 10:27 | Skoðanir (0)

Ég er enn að prufa mig áfram með hugbúnaðinn. Nú er spurning um það hvort þetta líti eins út og ég vil.
--------

Sagði valdis kl. 09:42 | Skoðanir (0)

2. ágúst 2001

Jæja, fimmtudagur fyrir Verslunarmannahelgi og ég rakst á þennan fína hugbúnað til að setja uppfærslur inn á heimasíðuna mína. Alltaf gaman að prófa nýja hluti.
--------

Sagði valdis kl. 19:46 | Skoðanir (0)