« ágúst 2001 | Main | október 2001 »
26. september 2001
Jæja, nú eru tvær vikur liðnar eftir árásina á WTC og allir komnir með upp í kok af fréttum af atburðinum og því sem hefur skeð eftir hann. Ég er búin að fara suður (eyddi hérumbil öllum peningunum mínum í það) og mæta í atvinnuviðtal vegna stöðu sem ég síðan fékk ekki. Ég verð að viðurkenna það að ég er orðin þreytt og leið á því að hafa enga almennilega vinnu, sérstaklega núna þegar skólarnir eru byrjaðir og allt gamanið að byrja. Vonandi fer að birta til hjá mér.
--------
Sagði valdis kl. 11:13 | Skoðanir (0)
3. september 2001
Sko, stundum er hægt að vera heimskur, og stundum er hægt að vera vitlaus. Þegar maður er hvort tveggja í einu þá er útkoman ekkert annað en hættuleg. Ég komst að því í gær þegar ég prófaði að vera bæði heimsk og vitlaus í einu. Málið er að mín var ekki nógu dugleg að hugsa um olíuna á bílnum og svo ætlaði mín að fara í heimsókn til Mömmu og Pabba. Á leiðinni kom reiðilegt rautt ljós á lyklaborðið og ljót, LJÓTT hljóð í vélina. Úrskurðurinn var sá að vélin væri ónýt, og eina leiðin til að nota þennan bíl aftur væri að skipta um hana, en aðeins ef hún fengist frekar ódýrt. Þannig að ef einhver á ódýra vél í Toyota Corola '87 þá væru allar ábendingar vel þegnar.
--------
Sagði valdis kl. 12:35 | Skoðanir (0)