« október 2001 | Main | janúar 2003 »

18. desember 2002

Núna er allt að fara í háaloft út af jólunum, allir að verða... leiðréttist, orðnir geðveikir og ekki síst þessir krakkagrísir sem ég er að kenna. Í hverjum tíma þykjast þau ekki þurfa að gera neitt, því að það er... næstsíðasti tíminn... síðasti tíminn... þriðji seinasti tíminn... mánudagur... einhver á afmæli... það snjóaði ekki í gær... úff, maður þarf að hafa sig alla við að hlæja ekki að þeim stundum.

Það verður annars ágætt þegar þessu er öllu lokið og jólafríið byrjar. Þá getur maður farið að stússast smá með Magna litla frænda, þó að hann kunni orðið að það er ljótt að stríða, en það megi stríða smá, en það er mjög ljótt þegar margir stríða einum. Svona kunna sumir þegar þeir eru þriggja ára, aðrir kunna þetta ekki ennþá á fullorðins aldri.

Ég þarf annars að fara að skrifa verkefni fyrir námið mitt. Hrikalegt að þurfa að hugsa um það líka, en svona er lífið.
--------

Sagði valdis kl. 13:10 | Skoðanir (0)

4. desember 2002

Jæja, núna er maður búinn að trassa þessa síðu í allt of langan tíma. Ég er búin að sjá svo sem milljón og eina villu og þónokkra hluti sem mig langar til að gera öðruvísi og betur. Fólk er búið að vera að gera grín af því hvað ég uppfæri hana sjaldan...

Núna hef ég verið að kenna á Húsavík frá því í haust og ég held að ég sé að komast inn í málin. Ég held því þó fram að öll lagni fólks í samskiptum við aðra hljóti að margfaldast þegar það þarf að kenna krökkum. Núna er allt á fullu í undirbúningi fyrir verkstæðisdag og fólk er í mis miklu stressi fyrir jólafrí. Samt er mesta hættan að fólk verði of afslappað og gleymi sér í upplyftingum og afkasti ekki neinu.
--------

Sagði valdis kl. 14:53 | Skoðanir (0)