« desember 2002 | Main | apríl 2003 »
14. janúar 2003
Nú er komið að prófum og það er stórundarleg tilfinning að vera allt í einu manneskjan sem leggur prófin fyrir. Ég hef komist að því að það að búa til próf er alveg hundleiðinlegt, en maður verður víst að gera það. Nú verður prufukeyrsla hjá mér eftir tæpan hálftíma þegar fyrstu bekkirnir taka próf hjá mér. Þetta verður mjög spennandi, sérstaklega að vita hvort prófið er of langt, of stutt eða hvað.
Svo vil ég senda með brandara dagsins: Hvað þarf marga súrrealista til að skipta um ljósaperu? Svarið... Reiðhjól!
--------
Sagði valdis kl. 12:25 | Skoðanir (0)