« janúar 2003 | Main | júní 2003 »

30. apríl 2003

Núna er seinasti hnykkurinn fyrir samræmd próf hjá 10. bekk og það gengur allt út á það. Ég tók saman nokkra tengla sem tengjast náttúrufræði hérna. Ég vona að nemendur mínir nýti sér þetta vel.

Gangi ykkur vel krakkar!
--------

Sagði valdis kl. 12:46 | Skoðanir (0)

8. apríl 2003

Nú er allt að fara á fullt því útskriftarbekkurinn minn er að fara að undirbúa júbíleringu. Að sjálfsögðu tekur tölvu- og veffólkið sig til og býr til vef fyrir dæmið, sem má finna á slóðinni http://www.ma98.net. Verulega flott síða.

Það er algjörlega nauðsynlegt að mínu mati að allir grípi tækifærið nú í vor og skoði sólmyrkvann sem verður 31. maí. Ég er búin að skipuleggja ferð með Pabba og fleira fólki til að fara út á Langanes og skoða sólmyrkvann með öllum nauðsynlegum tækjum. Þar sem sólin verður svo lágt á lofti þegar hringmyrkvinn á sér stað þá verður maður að fara á stað þar sem landið verður ekki fyrir manni. Þetta er einstakt tækifæri sem allir verða að grípa.
--------

Sagði valdis kl. 15:52 | Skoðanir (0)