« mars 2004 | Main | maí 2004 »
29. apríl 2004
Músagangur á síðunni minni
Ég ákvað að prófa að setja annað útlit á síðuna mína. Með því að skipta um Stylesheet og setja nýjar myndir inn á svæðið mitt er hægt að breyta um útlitið í einu lagi. Skemmtilegt.
Myndirnar eru sem áður frá GraphicGarden.com.
--------
Sagði valdis kl. 11:21 | Skoðanir (0)
Persónuleikapróf: Lord of the Rings?

Galadriel
If I were a character in The Lord of the Rings, I would be Galadriel, Elf, Queen of Lothlorien, wife of Celeborn and grandmother of Arwen.
In the movie, I am played by Cate Blanchett.
Who would you be?
Zovakware Lord of the Rings Test
--------
Sagði valdis kl. 08:36 | Skoðanir (0)
28. apríl 2004
Merkilegt er þetta fólk
Við höfum nú verið að vinna á fullu í verkefninu okkar seinustu daga og nú eru niðurstöður að skríða saman. Eitt það merkilegasta við þær er hversu jákvætt fólk virðist þó vera gagnvart samræmdum prófum. Ótrúlegt miðað við allar þær kaffistofu yfirlýsingar sem maður heyrir útundan sér út um allt, sem virðast benda til þess að fólk hafi þessi próf alveg á hornum sér, að menn eru bara nokkuð jákvæðir gagnvart þeim og bara djollí. Skil ekki svona.
Sagði valdis kl. 18:24 | Skoðanir (0) | TrackBack
27. apríl 2004
Sniðugur vefur
Orkustofunun er búin að opna gagnasjá þar sem maður getur skoðað Íslandskort, súmmað inn og valið hvers konar hlutir eiga að sjást. Sniðugt.
--------
Sagði valdis kl. 12:56 | Skoðanir (0)
26. apríl 2004
Það er komið sumar!
Svo að ég hætti á að hljóma aðeins Pollýönnu-lega þá er dagurinn í dag bara nokkuð góður. Sólin skín, veðrið er gott og ég vaknaði hress í morgun. Það er ótrúlegt hvað maður getur haft gott af því að fara að sofa upp úr kl. 10. Það er þó einn kostur við það að hafa svona þætti eins og Maður á mann í sjónvarpinu: maður er ekki að missa af neinu þó maður fari snemma að sofa! Ég sé reyndar ekki fleiri kosti við þann þátt, hverjum dettur í hug að þættir eins og Maður á mann, Maður er nefndur og Sjálfstætt fólk hafi eitthvað skemmtanagildi?? Eini munurinn sem ég sé reyndar á Maður er nefndur (sem átti best heima bara í útvarpi) og Maður á mann, er að það eru notaðir litir í Maður á mann og stundum klippt inní einhver myndbrot sem eru tekin annarstaðar. Álíka spennandi og skemmtilegt og soðnar kartöflur!
--------
Sagði valdis kl. 11:19 | Skoðanir (0)
23. apríl 2004
Ævintýri gærdagsins
Samkórinn fór í gær á Eskifjörð að syngja í kirkjunni þar. Það að syngja gekk ágætlega, en aðrir þættir ferðarinnar gengu öllu brösulegar, eins og að komast þangað, til dæmis. Við lögðum af stað um hádegi til að hafa rúman tíma fyrir tónleikana kl. 16. Það var nú líka eins gott því að uppi á miðri Jökuldalsheiði var ægileg þoka og allt í einu negldi bílstjórinn niður. Þá hafði hann séð bíl með hasarljós á veginum. Við fórum framhjá þeim bíl og sáum þá að það lá malarfæriband þvert yfir veginn og vel út af honum öðrumegin. Það hafði þarna einhver bjartsýnismaðurinn ákveðið að leggja af stað á pikköp bílnum sínum með svona líka flykki hangandi aftan í bílnum. Sniðugur! Svo kom það að sjálfsögðu í ljós þegar hann mætti bíl sem var með hestakerru að hann rakst í spegilinn á þeim bíl og missti stjórnina á öllu saman og endaði utan vegar með ónýtan bíl og færibandið þvert yfir veginn. En þessi maður er greinilega bjartsýnismaður út í gegn því að hann vildi ekki að færibandið yrði fært því að hann vildi að löggukall kæmi og tæki myndir, svona fyrir tryggingarnar. Eins og það séu einhverjar líkur á því að tryggingarfélögin segi ekki bara "sorrý, þú lagðir af stað með ólöglegan útbúnað, hefðir geta sagt þér að þú gætir ekki ráðið við neitt ef eitthvað kæmi upp á, þú færð ekkert bætt". En það var ekki komið neinu viti fyrir manninn, svo að við biðum í hálftíma eftir löggu sem tók tvær myndir og svo var draslið dregið frá og við komumst áfram. Við komumst til Eskifjarðar kortér í fjögur og rétt náðum að drífa okkur í önnur föt og svo bara að byrja að syngja!
Það var síðan upplifun útaf fyrir sig. Hljómburðurinn þarna er ótrúlegur, svo mikill og góður að það er eiginlega um of. Þetta er svipuð tilfinning eins og að syngja í Reykholti. Helsti gallinn við hljóminn þarna er að hljóðið er svo lengi að deyja út að maður heyrir bergmál lengi á eftir. Þannig hafði maður oft á tilfinningunni að sópranin væri á undan altinni því að við heyrðum í þeim þegar hljóðið kom til baka til okkar, 0,5 til 1 sek eftir að við sungum. Frekar ruglandi og getur leitt til þess að kórinn hægi á sér eða hraði sér. En það sem skiptir máli er það sem áhorfendurinir heyra og þeir sögðu að þetta hefði verið mjög gott.
--------
Sagði valdis kl. 08:47 | Skoðanir (0)
21. apríl 2004
post hoc ergo propter hoc
Þetta er latína og þýðir "Eftir þetta, þar af leiðandi vegna þessa". Þetta lýsir einni alveg frábærri rökvillu sem fólk lendir í. Dæmi: Það hefur eitthvað hrikalegt gerst árið 1850 því að allir sem voru á lífi þá eru dánir núna! Annað dæmi tengist grein sem ég var að lesa um hópaskiptingu eftir getu. Rannsóknir sýna að þeir sem lenda í getuminni hópum lenda oft undir í lífinu, ná ekki jafn langt og fá ekki jafn góð störf og þeir sem lenda í getumestu hópunum. Því hlýtur getuskiptingin að valda því að þessir einstaklingar lendi undir í samkeppninni. Ég er ekki sammála. Kannski lentu þeir undir vegna þess að þeir gátu bara ekki betur og höfðu ekki einu sinni möguleika til þess til að byrja með. Kannski voru aðrar aðstæður eins og aðstæður foreldra, fjármagn, gen eða annað sem ollu þessu.
Sagði valdis kl. 10:37 | Skoðanir (0) | TrackBack
20. apríl 2004
Mig langar á tónleika
Ég heyrði frétt fyrir nokkrum vikum síðan um að Metallica væri á leiðinni til landsins. Nú er það svo að það hafa þónokkrar hljómsveitir komið til landsins og mig ekki langað meira en bara smá að fara á þá tónleika (fyrir utan Rammstein, mig langaði töluvert að fara á þá). Nú eru aðalgaurarnir að koma og nú langar mig að fara. Ég ætla að reyna að fylgjast með og næla mér í miða þegar miðasalan hefst.
--------
Sagði valdis kl. 14:23 | Skoðanir (0)
19. apríl 2004
Góðar síður sem tengjast samræmdum prófum
Einar Jónsson er með góða síðu með gagnvirkum æfingum og leslistum fyrir náttúrufræði.
Skólavefurinn er með góða síðu með gagnvirkum æfingum. Vefurinn er reyndar alltof þungur og tekur langan tíma að hlaðast ef maður er ekki með þeim mun betri tengingu.
Húsaskóli er með síðu sem tekur saman helling af upplýsingum um samræmdu prófin.
--------
Sagði valdis kl. 14:42 | Skoðanir (0)
Fílabrandarar
Ég elska frekar heimskulega brandara. Þeir bestu af þeim eru oft fílabrandarar. Hérna eru nokkrir af síðu sem ég rakst á: Fílabrandarar
Hvers vegna eru fílar í bláum íþróttaskóm?
Hvítir skór skitna svo fljótt.
Hvers vegna halda fílar sig í stórum hjörðum?
Til þess að fá magnafslátt af bláum íþróttaskóm.
Hvers vegna láta fílar sig fljóta á bakinu?
Til að bleyta ekki íþróttaskóna sína.
Hvað er það sem er klomp, klomp, klomp, skvamp, klomp, klomp, klomp, skvamp?
Fíll í blautum íþróttaskóm.
hehehehe...
--------
Sagði valdis kl. 11:02 | Skoðanir (0)
17. apríl 2004
Upptökum lokið
Samkórinn var að streða við það áðan að klára upptökur fyrir geisladiskinn okkar. Við þurftum að eyða rosalegum tíma í að ná sumum lögunum góðum en það tókst (held ég) á endanum. Ég var orðin frekar stressuð fyrir einsöngslagið mitt en það gekk með nokkrum hnökrum. Svo var spennufallið svo mikið þegar við vorum búin með lagið að ég varð alveg máttlaus í hnjánum. Úff! En jæja, nú tekur bara við að hanna forsíðu á diskinn og halda áfram að vinna þá vinnu sem þarf að gera áður en diskurinn er gefinn út. Við ætlum að reyna að vera komin með þá vinnu nokkurn veginn áður en diskurinn kemur úr hljóðvinnslu, svo það þurfi ekki að bíða heillengi eftir útlitinu þegar hljóðið er löngu tilbúið.
--------
Sagði valdis kl. 19:02 | Skoðanir (0)
16. apríl 2004
Pointy Haired Boss er allstaðar...
--------
Sagði valdis kl. 15:05 | Skoðanir (0)
Upptaka samkórsins
Samkórinn var að taka upp í gær fyrir diskinn sem við erum að fara að gefa út. Þetta tók á, það má segja það. Okkur tókst að fara yfir lögin Góða tungl, Fyrr var oft í koti kátt, Grafskrift og komumst ríflega hálfa leið í gegnum syrpuna okkar með Andrew Lloyd Webber. Þá var fólk reyndar orðið þreytt og við fórum heim um kl.11. Ég hlakka bara til að klára þetta. Við tökum aftur upp í kvöld en þurfum sennilega að mæta aftur á morgun til að klára þetta.
--------
Sagði valdis kl. 08:27 | Skoðanir (0)
15. apríl 2004
Hvað er að???
Ég er farin að halda það að sjálfstæðisflokkurinn ætti bara að setja í stefnuskrá sína: "Ef þér líkar ekki við landslög, þá skaltu bara brjóta þau, því að þau eru hvort eð er asnaleg!" Þetta sýna allavegana forystumenn þeirra hvað eftir annað í verki. Má ég telja upp:
- Davíð Oddson, í samfloti við Dóra sinn, stóð í samningaviðræðum við Kanana án þess að tala við kóng eða prest. Allt í lagi, það voru víst engir kóngar eða prestar sem áttu að skipta sér að þessu, en hann hefði átt, samkvæmt okkar lögum, að renna málinu í gegnum utanlandsnefnd. Honum fannst það hins vegar asnalegt, svo að hann gerði það ekki.
- Þegar var haldið uppá afmæli heimastjórnar var kallað til fundar ríkisráðs. Einhver skrautfundur haldinn í raun og veru bara fyrir einhvern hégóma, en samt sem áður þá láðist þessum vinum okkar alveg að hafa samband við forsetann okkar. Það virtist vera allt of erfitt fyrir þessa menn að taka upp síma (eins og er nú erfitt að finna svoleiðis tæki nú til dags) og hringja í karlinn og bjóða honum. Þegar þjóðin hváði yfir þessu þá báru þessir mætu menn við: "Ja, það er hvort eð er svo asnalegt að hafa forseta!" Hvað kemur það málinu við? Við erum með forseta og mér finnst að við eigum að sýna honum að minnsta kosti jafn mikla kurteisi eins og við myndum sýna hverjum öðrum manni.
- Nú seinast var Björn Bjarnason að brjóta jafnréttislög. Þá segir hann bara "Þessi lög eru gamaldags og asnaleg." HALLÓ! Lögin eru frá árinu 2000! Það eru FJÖGUR ÁR síðan það var! Heldur maðurinn að heimurinn hafi breyst í grundvallaratriðum síðan það var? Fyrir utan það að það er ekki málið! Lögin eru í gildi og þá áttu að fara eftir þeim Bjössi!
Það sem mér finnst grátlegast við þetta allt saman er það að þessir menn eru við stjórnvöldin í landinu. Þeir eru í bestu stöðu af öllum í landinu til að breyta lögunum. Ef þeir eru svona rosalega ósáttir við lögin eiga þeir að breyta þeim en ekki brjóta þau. Það sem þeir velja hins vegar AFTUR OG AFTUR er að brjóta lögin og þrátt fyrir það eru til mörg þúsund Íslendingar sem eru til í að kjósa þessa vitleysinga aftur og aftur.
Ég sver það, ég er farin að halda það að þeir sem kjósa sjálfstæðisflokkinn séu með minni sem slagar hátt í það sem gullfiskar hafa.
--------
Sagði valdis kl. 15:43 | Skoðanir (0)
Óhollusta tölvanna
Nú er búið að gera rannsóknir í Bretlandi þar sem kom fram að þau börn sem hafa tölvur, leikjatölvur eða sjónvörp inni í herbergjum sínum þjást af svefnleysi. Börnin segjast vera að fara að sofa en stelast í tölvurnar og sjónvörpin áður en þau leggja sig. Önnur rannsókn segir að svefnleysi sé að valda nemendum þunglyndi. Tölvur og sjónvarpsáhorf eru semsagt tiltölulega skaðleg heilsu barna. Eða hvað?
--------
Sagði valdis kl. 11:23 | Skoðanir (1)
Sniðugar græjur
Ég rakst á þessa sniðugu síðu sem gerir manni kleyft að setja mynd sem sýnir hvernig veðrið er hjá manni á hverjum tíma. Þessi mynd er reyndar tengd Akureyri, en ekki Húsavík, en það var bara ekki boðið upp á Húsavík. Samt, nógu nálægt. Mér fannst þetta sætt. Myndin er á tenglarammanum hérna til vinstri.
Sagði valdis kl. 10:18 | Skoðanir (0)
14. apríl 2004
Tvær góðar greinar
Ég var að lesa tvær góðar greinar í náminu mínu.
Önnur er eftir Ólaf J. Proppé og ber titilinn Þróun samræmdra prófa í íslenskum skólum frá 1880 til 1977. Ólafur fer mjög vel yfir sögu samræmdra prófa alveg frá því byrjað var að prófa samræmt með munnlegum prófum í Þingeyjarsýslum og Borgarfirði um 1890, allt þar til tekin voru upp prófin sem kölluð eru enn í dag samræmd próf. Ólafur stendur sig mjög vel í að segja frá þeirri umræðu sem er í gangi samhliða þeim breytingum sem gerðar eru á framkvæmd prófanna. Sérstaklega var fróðlegt að lesa um það sem Steingrímur Arason sagði og gerði. Ein sú besta setning sem er í allri greininni er tilvitnun í grein eftir Helga Hjörvar frá 1921:
Höfuðatriði við öll þessi próf er það, að velja spurningar svo, að allir heilvita nemendur geti svarað einhverju, en hins vegar helst enginn öllu, svo allir verði fullreyndir.
Hin greinin er eftir Popham og er um ástæðurnar fyrir því að samræmd próf geta ekki mælt kunnáttu nemendanna. Það sem mér fannst einna helst athyglisvert í þeirri grein er það sem hann kallar "Breytileikinn tilbeðinn sem goð". Þar segir hann frá því hvernig þau námsmatsfyrirtæki sem vinna á þessu sviði í Bandaríkjunum búa til próf sem eiga að skilja sauðina frá höfrunum, þ.e. búa til dreifingu hjá nemendum. Til þess að dreifingin komi fram þurfa að vera prófatriði á prófinu sem sumir geta en aðrir geta ekki. Augljóslega! DÖH!... eða hvað...? Þetta er nefnilega ekki svo sniðugt. Segjum sem svo að það sé eitthvað sem okkur finnst rosalega mikilvægt að allir nemendur kunni og því kennum við þeim það rosalega vel, t.d að leggja saman. Í samræmdum prófum hjá okkur Íslendingum eru dæmi í stærðfræðiprófinu sem prófa það hvort nemandinn kunni að leggja saman og vegna þess hvað þetta er mikilvæg kunnátta sem allir eiga að ráða við, þá eiga flestir nemendur að geta ráðið við þessi dæmi. Þessi dæmi kæmust ekki inn í prófin hjá Könunum vegna þess að þau búa ekki til dreifingu! Það eiga allir að geta reiknað þau og því fá flestir fullt fyrir þessi dæmi. Þau eru þess vegna felld út úr prófunum hjá Könunun og önnur sett í staðin sem sumir geta en aðrir ekki. Eins er lítið um þung dæmi eða erfiðar spurningar hjá þeim, vegna þess að slíkar spurningar kalla ekki fram dreifinguna.
Ég er rosalega sammála honum Popham í þessu sambandi, en að öðru leyti er ég ekki að samþykkja allt sem hann segir.
Sagði valdis kl. 17:37 | Skoðanir (0) | TrackBack
Vinnuramminn er búinn...
... ég er farin heim!
--------
Sagði valdis kl. 17:14 | Skoðanir (0)
It's a bright new day
Dagurinn byrjaði vel hjá mér í dag: Ég fór með bílinn minn í skoðun og hann fékk fulla skoðun. Svo fór ég og tók bensín og þá er hann ekki lengur svangur. Bíllinn minn er nýbónaður, nýsmurður og með nýstillta vél. Mér líður eins og ég sé á limma þegar ég keyri hann, hann er eitthvað svo smooth.
Núna er allt á fullu hjá mér, ég er að vinna könnun í tengslum við verkefnið mitt í kennsluréttindanáminu og hún virðist öll vera að ganga upp (7, 9, 13, bank, bank) Svo er Samkórinn að taka upp geisladisk í vikunni þannig að fimmtudags og föstudags kvöld fara í það, auk þess sem maður verður að reyna að vinna sem mest í verkefninu. Ég hlakka reyndar frekar mikið til að heyra hvernig tekst til, en það verður víst einhver bið. Reyndar sagðist Hóffý vera að vonast til að diskurinn verði tilbúinn fyrir Mærudaga en ég ætla nú að vona það að hann verði tilbúinn fyrr. Það væri gott ef hann verður tilbúinn einhverntíma í sumar.
--------
Sagði valdis kl. 09:22 | Skoðanir (0)
13. apríl 2004
Páskafríinu er að ljúka
Jæja, páskafríinu lýkur í dag og á morgun er það bara back to the trenches. Þetta er búin að vera ágætishvíld þó. Maður er bæði búinn að liggja í leti og vera duglegur af og til, t.d. bónaði ég bílinn minn í gær, nokkuð sem hefur held ég ekki gerst síðan bíllinn skipti um eigendur. Það er samt ótrúlegt hvað smá bón getur gert fyrir bíl, hann er núna rauður í staðinn fyrir að vera að nálgast frekar skelfilegan bleikan lit.
Ég hef eytt þónokkru af frítímanum mínum í að horfa á Family Guy sem ég fékk lánaðan frá Krissu. Fyrir þá sem hafa gaman af svipuðum húmor eins og Simpsons og Futurama þá er Family Guy alveg frábær. Ég færi mig bráðum yfir í Futurama, sem er alveg klassík.
--------
Sagði valdis kl. 16:46 | Skoðanir (0)
6. apríl 2004
Ruslpóstur
Ég byrjaði áðan að sækja póstinn minn í pósthólfið... hætti þegar ég sá að Outlookið sagði "Receiving message 4 of 134". 134!!!! Ég veit að ég er ekki svona vinsæl og það þýðir bara eitt: ruslpóstur. Ég hef verið að berjast við þetta vandamál í smá tíma, fengið svona 10-20 pósta á dag sem hafa flestir borið titlana Re: Hi og Interesting Stuff. Óþolandi. Hvað heldur fólk eiginlega að ég hafi áhuga á að kaupa mikið Viagra, Lavitra eða annað slíkt og hvað heldur það eiginlega að ég hafi mikið að gera með að láta stækka á mér typpið!
Mér sýnist allar líkur vera á því að ég þurfi að fara að skipta um netfang... pirrandi. Ég er búin að nota sama netfangið í fleiri ár og mér þykir vænt um það. Svo er önnur hugsanleg lausn á málinu, að uppfæra aðganginn minn hjá Margmiðlun upp í Silfur eða Gull áskrift svo að ég fái ruslpóst þjónustu hjá þeim. Ég á bara svo fáa peninga þessa dagana að ég vil helst ekki vera að bæta á mánaðarleg útgjöld að óþörfu.
Hins vegar er ég hrædd um að ég eigi eftir að henda pósti frá einhverjum sem ég þekki vegna þess að ég held að hann sé rusl... Þannig að: Vinsamlegast skrifið skýrar og greinargóðar setningar í Subject þegar þið sendið mér póst, því annars gæti ég hent honum ólesnum.
--------
Sagði valdis kl. 14:16 | Skoðanir (0)
4. apríl 2004
Það er komið páskafrí!!!
Ég er svo ánægð með lífið! Ég gat sofið út í morgun, fékk að borða hjá mömmu og pabba í gær, gat leikið mér aðeins með frænda minn og lífið er almennt séð mjög gott. Námshópurinn minn vann aðeins í verkefninu okkar í gær og ég held að þetta verði almennt séð alveg magnað... ég skal segja betur frá því seinna.
--------
Sagði valdis kl. 16:23 | Skoðanir (0)
1. apríl 2004
Nokkrir góðir málshættir
Ég var að fara yfir verkefni hjá krökkunum. Þau áttu m.a. að finna málshætti og skrifa í verkefnið sitt. Þessir voru meðal þeirra sem komu upp úr krafsinu:
Það er til lítils að hlaupa ef stefnt er í skakka átt.
Þegar peningar tala er sannleikurinn mállaus.
Sá skal friðinn ei brjóta, sem friðarins vill njóta.
Þú lærir meira af börnunum en þau af þér.
Listin að vera hamingjusamur er fólgin á því að velja sér einföld gleðiefni.
Segðu ekki allt, sem þú hugsar, en hugsaðu allt, sem þú segir.
Þekking eyðir ótta.
Sé höfðingi dyggður mun lýðurinn vera það líka.
--------
Sagði valdis kl. 15:18 | Skoðanir (0)
Það er að koma páskafrí...
Það er að koma páskafrí... ég á bara eftir að kenna einn tíma... Víííííííí!!!
--------
Sagði valdis kl. 11:18 | Skoðanir (0)
Síðan stenst staðlana!
Ég keyrði síðuna mína í gegnum vélina hjá W3C og eftir örlitlar tilfæringar reyndist síðan mín standast staðlana til að vera XHTML 1.0! Ég má því setja þetta merki á síðuna mína:
Ég ætla að finna því einhvern góðan stað bráðum, en ég á enn eftir að láta staðfesta að CSS skráin mín standist staðlana. Svo þarf ég líka að koma fyrir tengli yfir á www.graphicgarden.com, Blogger.com og fleiri svoleiðis staði.
--------
Sagði valdis kl. 10:23 | Skoðanir (0)
Þak á fæðingarorlof
Mér finnst svo sérstök þessi umræða um þakið á laununum sem fólk á að fá þegar það fer í fæðingarorlof. Margir tala um að þarna sé verið að "mismuna þeim sem hafa há laun" og að launaháir karlmenn þurfi að lækka í launum til að fá að eyða tíma með ungunum sínum. Alveg finnst mér þetta einstakt. Á meðan fólk er að tóra á 88.000 kr. á mánuði þá er verið að vorkenna þessum greyjum sem geta varla látið enda ná saman með 480.000 kr. á mánuði! Sorrý, en ef þú ert með yfir 600.000 kr. á mánuði í laun þá ættir þú alveg að geta andskotast til að leggja bara eitthvað til hliðar þessa níu mánuði meðan þú bíður eftir barninu og tekið til í fjármálunum hjá þér! Í alvörunni talað, þetta eru kannski fordómar hjá mér en ég hef ekki samúð með fólki sem vælir "aumingja, aumingja ég, ég hef svo há laun". ÓHEPPNI!!!
--------
Sagði valdis kl. 08:28 | Skoðanir (0)