« Um Ömmu mína | Heim | »
Ótrúlega margir bjartir fletir
Það eru búnir að vera ótrúlega margir bjartir fletir á lífinu og tilverunni seinustu daga. Til dæmis heyrði ég í gær að verðlaun í Landsbankadeild fótboltans hafi verið gerð jafn há hjá konum og körlum. Þetta finnst mér vera ótrúlega mikil framför og vil hrósa þeim sem fyrir þessu standa. Þetta held ég að sé mikilvægt skref í áttina að því að ná fram raunverulegu jafnrétti kynjanna í samfélaginu.
Annar bjartur flötur er að ríkisstjórnin sé loksins að sjá ljósið og sé hætt við þetta fáráðlega fjölmiðlafrumvarp. Reyndar ættu þeir að fara eftir reglunum og halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eins og tekið er fram í stjórnarskrá að eigi að gera. Við sjáum til hvernig þessu horfir fram...
Fór að sjá Shrek 2 í gær. Mjög góð afþreying en er þó ekki alveg jafn góð og hin fyrri. Antonio Banderas (borið fram með rámri röddu "Banderaþ") var alveg frábær sem stígvélaði kötturinn. Í myndinni var gert stólpagrín að Hollywood og maður þurfti að hafa sig allan við að fylgjast með öllum skotunum. Söguþráðurinn og boðskapurinn voru reyndar obboðslega grunnir.
Já, og svo fékk ég leyfisbréfið mitt í morgun. Því var troðið frekar ruddalega inn um lúguna hjá mér svo að það er allt krumpað, en engu að síður hef ég núna skjalfest réttindi til að kenna á framhaldsskólastigi. Jippí!
--------
Ritað 20. júlí 2004 kl. 13:42 um blogger| Skoðanir (0)