« Fjölmiðlalögin | Heim | Leti... »
Quantum Leap
Ég man þá gömlu góðu daga þegar maður var í grunnskóla og á hverju föstudagskvöldi val alveg nauðsynlegt að horfa á Quantum Leap. Þessir þættir voru í þvílíku uppáhaldi hjá mér, ekki síst vegna þess að þeir fjölluðu um svo allt annað en flestir þeir þættir sem sjónvarpsstöðvarnar buðu uppá á þessum tíma. Þetta var þegar við náðum Stöð2 í gegnum loftnet sem stóð efst á tólf metra hárri stöng sem Pabbi reisti ofan á bílskúrinn. Fyrir þetta framtak urðum við með þeim fyrstu í skólanum til að sjá Stöð 2 (það var almennt séð ekki gott samband í sveitunum). Ég man að fyrir þetta varð maður reyndar aðeins utanveltu í samræðum í skólanum, bekkjarsystkyni mín urðu að gera sér að góðu hvað sem RÚV bauð þeim uppá svo að þau vissu yfirleitt ekkert hvað ég var að tala um þegar ég vildi ræða hvað hafði gerst í þáttunum á Stöð2. Það var samt þess virði. Alltaf hefur Sam (Scott Bacula) og Al (Dean Stockwell) setið í huga mínum sem hetjurnar sem ferðuðust um tímann og björguðu öllu því sem fór úrskeiðis. Síðan þá hefur maður séð leikarana alltaf af og til og þá rifjast upp ævintýrin frá því í gamla daga... einkum situr í minni mínu þátturinn þar sem Sam lenti í líkama löggu, á meðan Al var fastur í fangabúðum í Viet Nam... á þeim tíma þegar fyrsta kona Al var einmitt að gefast upp á biðinni og taka saman við þessa löggu... Ótrúlega góður þáttur.
Um daginn sá ég einmitt Dean Stockwell í einhverri mynd (man ekkert hvaða mynd það var) og minntist á það að þessi hefði nú einmitt leikið í Quantum Leap. Þá kváðu við stunur meðal systra minna "Ójá, þeir voru yndislegir". Við ákváðum að athuga hvort hægt væri að nálgast þessa þætti á DVD og viti menn: Ný búið að gefa út fyrstu þáttaröðina! Ég stökk til og pantaði diskana frá Amazon, þeir komu um daginn og ég er að vinna mig í gegnum þá...
--------
Ritað 8. júlí 2004 kl. 11:08 um blogger| Skoðanir (0)