« Lágmarksþátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu | Heim | Hvaða "Movie Villain" ert þú? »
Undarlegir dómar
Maður getur ekki annað en hváð þegar maður sér þessar tvær fréttir hlið við hlið á mbl.is: Fangelsi fyrir líkamsárás á Akureyri og Dæmdur fyrir að falsa nafn konu sinnar á dómssátt. Samkvæmt fréttunum fékk maðurinn sem framdi líkamsárásina einn mánuð í fangelsi, en falsarinn fékk tvo. Báðir viðurkenndu brot sín greiðlega og báðir fengu skilorð, árásarmaðurinn í tvö ár, falsarinn í þrjú. Mér finnst þetta frekar skrítið. Af hverju fær maðurinn sem falsaði undirskrift þyngri dóm en maðurinn sem réðst á manneskju svo sá á henni?
--------
Ritað 1. júlí 2004 kl. 14:49 um blogger| Skoðanir (0)