« No rest for the wicked... | Heim | Herbergið tilbúið »
ADSL pælingar
Ég er búin að vera mikið að pæla síðustu daga í því hvort maður þurfi ekki að fá sér ADSL og þá frá hverjum maður ætti að kaupa þetta. Mér sýnist að maður endi með því að kaupa græjurnar hjá Margmiðlun en ég er samt tvístígandi í þessu. Það sem ég hef sérstaklega áhyggjur af er hvernig fjárhagsstaðan verður hjá mér á næstu mánuðum. Nú er ég búin að skipta um starf og fá launahækkun, en ég er líka búin að kaupa íbúð og með því fylgja aukin útgjöld... Þetta er erfitt mál...
--------
Ritað 8. september 2004 kl. 10:49 um blogger, tölvur| Skoðanir (3)
Skoðanir
ég var hjá símanum en fór yfir í BTnet miklu betra og hraðari samband þetta er allt of dýrt hjá símanum. BTnet er með þráðlausan Router, + 6 mán frítt í bíó, + 6 mán frí áskrift á tonlist.is
Ég skifti vegna þess að ég er með fyrirtæki á netinu www.ferd.is
Hmmm... Ég kíkti á þessa síðu... ég væri ekkert að auglýsa hana ef ég væri þú, Jón Haukur. Hún virðist vera með "hönnuð fyrir IE!!!" stimplað á hana með stórum rauðum stimpli. Forsíðan er allt í lagi en t.d. Um Okkur síðan er alveg hræðileg, mest af textanum lendir lengst til hægri fyrir utan skjáinn og netföngin skrifast ofan í svarta línu sem á víst að ramma þetta allt. Fáið endilega einhvern með vit á css til að kíkja á þetta fyrir ykkur.
12. október 2004, kl. 20:16
Heil og sæl.
Ég rakst á ADSL pælingar þínar ef ég ætti að ráðleggja þér skaltu versla við símann, ekki spurning, þar færðu þráðlausann "Router" frítt með áskriftinni.
Það er nú skrítið að ég skuli ráðleggja þér þetta þar sem ég er sjálfur með vefverslun.........aldei að vita nema þig vanti aðstoð eða tölvuvörur.
Kær kveðja
Einar