« GMail | Heim | Íbúðarmyndir »

Formúlufár

Það hefur löngum verið sagt að hægt sé að lýsa öllu með stærðfræðilegum formúlum. Það er löngu þekkt að hægt er að lýsa ferð fallandi hlutar með formúlu, eins geta formúlur sagt fyrir um staðsetningar himintunglanna langt fram og aftur í tímann. Samt getur þetta gengið of langt. Í mars kom út formúla fyrir réttri hælahæð þar sem var búið að reikna út ákveðna hæð fyrir hverja skóstærð.

Hættan á að detta, reynsla og innkaupsverð reiknast saman í breytuna Q, en nákvæmlega rétt hæð hælanna nefnist h. Formúlan hljóðar í heild þar með svona: h=Q(12 3s/8).

Í júní var svo gefið út að "vísindamenn" hefðu reiknað út formúlu fyrir fyndnasta brandaranum.

The formula - c=(m+nO)/p - was worked out by Helen Pilcher and Timandra Harkness. (...)

In the formula, c is the funniness of the joke; m is the comic moment which is arrived at by multiplying the punchline’s funniness rating by the length of the joke’s build up.

Pilcher og Harkness eru reyndar bara stand-up grínistar sem skelltu þessu saman í djóki, en dagblöð fundu sig knúin um allan heim til að slá þessu upp á síður sínar, þó að oft komst þetta ekki nema í litla hliðargrein. Ástæðan fyrir því að þær bjuggu þessa formúlu til var sú að þeim fannst merkilegt hvernig allavegana formúlur voru orðnar fréttaefni, sama hversu heimskulegar þær voru. Fyrir utan formúluna fyrir hælnum var búið að birta formúlur fyrir samlokum og hvernig á að leggja í stæði.

En svona fyrst maður er farinn að velta fyrir sér furðulegum formúlum langar mig til að skella inn uppáhalds formúlunni minni, sem er úr The Discworld Companion eftir Terry Pratchett:

The relevant equation is Knowledge = Power = Energy = Matter = Mass; a good bookshop is just a genteel Black Hole that knows how to read.

Ritað 23. september 2004 kl. 10:00 um stærðfræði| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/17

Skoðanir