« Skurðaðgerð á fartölvu | Heim | Klassískir samstarfsörðugleikar »

Verkfall

Nú er verkfall hafið hjá grunnskólakennurum. Þetta finnst mér afskaplega sorgleg staðreynd, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hvað verkföll eru orðin hrikalega bitlaus vopn í höndum kennara. Ég stend reyndar fyllilega með kennurum í þessu samhengi og sjálf greiddi ég atkvæði með verkfalli í vor, meðan ég var enn að kenna í grunnskóla og taldi að málið kæmi mér aðeins meira við en það gerir í dag. Samt veit ég það að verkföll virka sem skyldi þá og því aðeins að hægt sé að nota þau til að hefta tekjumöguleika vinnuveitandans. Hins vegar getum við skoðað tölurnar og séð hvaða fjárhagsleg áhrif verkfall hefur á sveitarfélögin:

  1. Sveitarfélögin greiða kennurum ekki laun á meðan verkfallinu stendur. Kennarar greiða sér sjálfir út laun úr verkfallssjóði sem þeir hafa sjálfir safnað í. Auk þess var tekinn skattur af launum kennara áður en greiðslan fór ofan í sjóðinn og svo er tekinn skattur aftur þegar greitt er úr honum svo að ríkið fær tvisvar skatttekjur af sama peningnum.
  2. Sveitarfélögin geta reyndar ekki skrúfað fyrir allan kostnað vegna skólanna, því að skólastjórnendur, skólaliðar, húsverðir og annað starfsfólk sem ekki sinnir kennslu að jafnaði skal mæta til vinnu. Því lækkar ekki launakostnaður þessa fólks á meðan verkfalli stendur.
  3. Tekjur sveitarfélaganna frá ríkinu vegna skólahalds lækka ekki þó komi til verkfalls.

Niðurstaðan hlýtur að vera sú að því lengur sem verkfallið endist því meira spara sveitarfélögin því launaliðurinn er þrátt fyrir allt með stærslu kostnaðarliðum skólanna, ef ekki sá stærsti. Það er borðleggjandi að ef sveitarfélögin draga verkfallið í tvo mánuði má hækka laun kennara um rúm 4% strax án þess að sveitarfélögin líði neinn kostnaðarauka! Sparnaðurinn í launaliðnum þessa tvo mánuði dekkar alveg þá hækkun í fjögur ár.
Jæja, ég er vonlaus bjartsýnismanneskja og vona að samningaviðræður gangi upp sem fyrst. Þetta þarf ekki alltaf að dragast von úr viti, verkfallið '97 var þrátt fyrir allt bara í 1 dag. Mér finnst bara sorglegt að sjá Davíð fara á móti Golíat með sykurpúða í slöngunni sinni í staðinn fyrir steina.

Ritað 20. september 2004 kl. 10:54 um menntamál| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/12

Skoðanir

1.
Elva
21. september 2004, kl. 10:33

Nokkuð til í þessu hjá þér. Það er ekkert skrítið að sveitafélögin virðast ekki vera neitt sérstaklega æst í að koma í veg fyrir verkfall!
Annars las ég í fyrstu tilraun "...því að skólastjórnendur, skólaliðar, húsverðir og annað starfsfólk sem ekki sinnir skildu sinni að jafnaði..." og var að spá í hverskonar skot þetta væri?
Nett dislexia í gangi ;)