« Þjóðaratkvæði um tiltekin mál í stjórnarskrá | Heim | Endalaus yfirferð »

Filemaker Pro

Úff, ég verð að ranta aðeins um verkefni sem ég er með í gangi. Þeim sem forðast tæknimál er bent á að vinda sér beint í aðrar færslur.

Kannast einhver við það að hafa reynt að setja saman forrit í Filemaker Pro? Fyrir bölvaðan aumingjaskap fór ég út í það að nota þetta dót, m.a. vegna þess að mér var sagt að þetta væri alvöru gagnagrunnur. Þetta drasl er í einu orði sagt GAGNSLAUST og ég ætla við fyrsta mögulega tækifæri að færa viðkomandi gagnagrunn yfir í MySQL eða einhvern annan alvöru gagnagrunn. Hverjum dettur í hug í byrjun 21. aldar að segja að kerfi sem styður ekki alvöru SQL eða raunverulega relational gagnagrunna sé alvöru gagnagrunnur?? Ég er að lenda í þvílíkum vandræðum vegna þess að Filemaker er með svo mikla tengingu milli viðmóts og gagna að það er hérumbil vonlaust að ætla að nálgast gögnin nema maður smíði sér sérstaklega valmynd til þess. Til þess að reikna summu verður maður að búa til svæði inni í töflunni sem skilgreint er sem summa þannig að kerfið getur verið að bisa við það að reikna summur í hvert skipti sem gögn eru sótt, þó svo að þær séu hvergi notaðar!

Æi, ég er búin að fá nóg. Ég ætla að bisa nóg við þetta til að ná út gögnunum sem þurfa að notast núna og svo færi ég draslið í betra kerfi!

Ritað 10. október 2004 kl. 15:45 um tölvur| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/36

Skoðanir

1.
Tryggvi R. Jónsson
11. október 2004, kl. 10:38

Ef þú ákveður að taka stökkið í mysql þá gæti þessi grein: http://dev.mysql.com/tech-resources/articles/filemaker_mysql_whitepaper/filemaker_to_mysql_whitepaper01.htm hjálpað þér eitthvað.
Annars ættiru að sækja um ritarastöðu í FMpro-fan-klúbbnum, minnir að Garðar Már sé formaður ;)

2.
Elva
11. október 2004, kl. 12:06

Wow!! Ég ætlaði bara að segja að ég sleppi þessarri en svo sá ég kommentið frá Tryggva!! Mysql lítur út eins og stytting á e-h sveppanafni í mínum augum. Það er merkilegt hvað bakgrunnur manns getur haft áhrif á upplýsingaupptöku ;)

3.
Tryggvi R. Jónsson
11. október 2004, kl. 13:16

Hvernig bakgrunn getur maður haft þannig að mysql hljómi sveppalega? Of mikil sveppaneysla?

4.
elva
12. október 2004, kl. 14:44

Hehe Tryggvi. Sveppir og svepptengd málefni byrja oft á Mys-eitthvað. Þessar upplýsingar varð ég mér út um í líffræði (eru samt gamlar);)

5.
Valdís
12. október 2004, kl. 15:32

Híhí! Ótrúlegt hvað bakgrunnurinn hefur áhrif á mann! Ég les MySQL sem "mæ-ess-kú-ell" en Elva virðist greinilega sjá eitthvað mys.q.l. Fyndið.

6.
elva
13. október 2004, kl. 16:08

Eins og ég sagði fyrst; ætlaði að sleppa að lesa þessa þannig að ég sá ekki neina hástafi ;) né punkta bara mysql, gæti vantað sérhljóða í seinnipart orðsins; mysiqal Sp. Ný óþekkt myglutegund fyrir heiminn, finnst einungis í ónýtum gagnagrunnum ;) (held mig við það sem ég skildi í greininni)