« Tunglmyrkvi | Heim | Góð spilahelgi »

Föstudagskvöldið

Við hittumst á föstudagskvöld og spiluðum, fyrst Elva systir ákvað skyndilega að koma yfir á réttan landshluta. Þar sem galdrastelpan mín var fjarri góðu gamni og Tryggvi var fyrir sunnan bauð hann mér að spila álfastelpuna hans, gegn því að hún lifi spilið af. Ég gerði mitt besta til að halda það loforð, þó að ég vældi nokkrum sinnum yfir kvöldið: "Ég lofaði Tryggva að drepa ekki karakterinn hans!" Þetta gerðist til dæmis þegar risarnir voru að berja hana með steinum, þegar hún datt útbyrðis þegar skipið var að sökkva, þegar hún ætlaði að ráðast á drekann og þegar hún datt svo af drekanum þegar hann var að fljúga með hópinn til Palanthas. Sem betur fer lifði hún þó af.

Ritað 31. október 2004 kl. 16:13 um roleplay| Skoðanir (11) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/50

Skoðanir

1.
Tryggvi R. Jónsson
1. nóvember 2004, kl. 10:33

Jahérna... slæmt að missa af þessu virðist hafa verið talsvert fjör. Spurning hvort mér hefði tekist eitthvað betur við að halda lífinu í greyið álfastelpunni.

2.
Valdís
1. nóvember 2004, kl. 10:58

Tekist betur...? Ja, hún lifði þetta af! Ég lofaði engu meiru. Bara binary gildi hérna; 1: Álfastelpan lifir, 0: Álfastelpan deyr. Ekki um annað að ræða. Hún lifði alveg 100% af, með fulla HP í lok leiks þar að auki, ef ég man rétt ;)

3.
Tryggvi R. Jónsson
1. nóvember 2004, kl. 11:10

Nú nú ;) annars finnst mér þetta var alger óhappakráka þessi stelpa... Hvernig er hægt að vera alvöru álfur og DETTA af bakinu á dreka? That ain't cool ;)
En fær samt plússtig fyrir áhugavert "gæludýr".

4.
Valdís
1. nóvember 2004, kl. 11:23

Já, ef þetta hefði verið CyberPunk hefði hún þurft að taka nokkur Cool-check, því að hún var hreint ekki kúl þarna. Gæludýrið er reyndar ekki beinlínis "cool" en rosalega flott samt ;)

5.
Tryggvi R. Jónsson
1. nóvember 2004, kl. 13:05

Coolness is a factor ;) Held að það hafi verið það sem klikkaði. Örugglega bara Post Traumatic Stress Disorder eftir að hafa hitt dreka í fyrsta skiptið á ævinni, horfa upp á galdrastelpu breytast í poll og vera nær dauða en lífi af hræðslu.
Það er væntanlega til eitthvert lesefni um þetta gæludýr?

6.
Valdís
1. nóvember 2004, kl. 15:00

Það er smá færsla um það í Dragonlance worldbook, annars veit ég ekki. Þarf að kíkja á það hvernig þetta er skrifað til að geta leitað á netinu.

7.
elva
1. nóvember 2004, kl. 18:45

Ég held að þessi grey séu líka í bókum eins og "Elves" þannig að líklegt er að það sé hægt að finna e-h um þá á netinu. Ég held að þeir séu ekki bara í Dragonlance.

8.
Tryggvi R. Jónsson
1. nóvember 2004, kl. 20:56
9.
Valdís
2. nóvember 2004, kl. 09:47

Já, gott ef þetta er ekki greyið. Og á meðan ég man, þú þarft að skíra greyið.

10.
elva
2. nóvember 2004, kl. 10:31

Jebb, þetta er greyið ;) Þar sem hann er bara hvolpur ennþá er hann samt "einungis" með 2/3 af fullorðnum stötsum.

11.
Tryggvi R. Jónsson
2. nóvember 2004, kl. 11:21

Held svei mér þá að ég þurfi að prenta út sér blað fyrir þetta grey... já og auðvitað finna nafn. Það ætti nú að vera tiltölulega augljóst ;)