« september 2004 | Main | nóvember 2004 »

31. október 2004

Föstudagskvöldið

Við hittumst á föstudagskvöld og spiluðum, fyrst Elva systir ákvað skyndilega að koma yfir á réttan landshluta. Þar sem galdrastelpan mín var fjarri góðu gamni og Tryggvi var fyrir sunnan bauð hann mér að spila álfastelpuna hans, gegn því að hún lifi spilið af. Ég gerði mitt besta til að halda það loforð, þó að ég vældi nokkrum sinnum yfir kvöldið: "Ég lofaði Tryggva að drepa ekki karakterinn hans!" Þetta gerðist til dæmis þegar risarnir voru að berja hana með steinum, þegar hún datt útbyrðis þegar skipið var að sökkva, þegar hún ætlaði að ráðast á drekann og þegar hún datt svo af drekanum þegar hann var að fljúga með hópinn til Palanthas. Sem betur fer lifði hún þó af.

Sagði valdis kl. 16:13 | Skoðanir (11) | TrackBack

28. október 2004

Tunglmyrkvi

Svona getur gerst ef maður fylgist ekki með. Ég hélt að ég væri með það nokkurn veginn á tæru hvenær sól- og tunglmyrkvar væru og því kom það alveg aftan að mér að heyra að það myndi verða tunglmyrkvi síðastliðna nótt. Auðvitað fór mín á stúfana og reddaði myndavél og vaknaði svo tvisvar í nótt til að taka myndir af atburðinum. Það gekk ágætlega að ná myndum af almyrkvanum en flestar myndir af deildarmyrkvanum urðu hristar. Þær skástu eru samt komnar inn á myndasafnið.

Sagði valdis kl. 10:56 | Skoðanir (2) | TrackBack

27. október 2004

Á ég að þora...?

Lagði próf fyrir fyrsta bekk í dag. Er að manna mig upp í að fara yfir það...

Sagði valdis kl. 15:47 | Skoðanir (2) | TrackBack

26. október 2004

Verkefni

Nú er það svo undarlegt að maður er kominn hinumegin við borðið, maður er sjálfur að leggja fyrir og fara yfir verkefnin sem nemendurnir vinna. Nú í gær var ég að fara yfir heimadæmin sem nemendurnir mínir voru að skila á föstudagsmorgun. Ég er á móti því sem prinsippmál að taka heimaverkefni með mér heim um helgar. Ég skal sitja hér í skólanum langt fram eftir degi, eða eins og í gær, til kl. 19, en ég vil eiga helgarnar fyrir sjálfa mig.

Þegar ég gróf mig í gegnum bunkann var það æ ofan í æ sem sama atriðið var að fara í taugarnar á mér. Þegar krakkarnir voru í grunnskóla lærðu þeir það að reikna vexti yfir ár og leggja við höfuðstólinn til að finna stöðuna eftir árið. Nú erum við búin að fara yfir formúlu sem gerir þeim kleyft að reikna í eini færslu stöðuna eftir einhver n mörg ár. Samt sá maður í mörg skipti að krakkarnir reiknuðu

80.000*0,075=6.000, 80.000+6.000=86.000
86.000*0,075=6.450, 86.000+6.450=92.450
92.450*0,075=6933,75 92.450+6933,75=99.383,75

þegar þau áttu að reikna stöðu á 80.000 sem liggja á 7,5% vöxtum í 3 ár. Ég persónulega myndi reikna þetta með b3=80.000(1+0,075)3 sem gefur sömu niðurstöðu, en það er greinilega miklu flóknara að reikna í einu þrepi en að nota sex þrep. Undarlegt.

Ég reyndi að segja þeim að það að reikna í sex þrepum gefur sexfalda möguleika á vitleysu, en ég er ekki viss um að það hafi náð í gegn. Þá fékk ég spurninguna "Af hverju megum við ekki nota þær aðferðir sem við lærðum í grunnskóla, fyrst þær gefa rétt svör?" Ég svaraði einfaldlega "Ef þið ætlið ekki að læra neitt nýtt, til viðbótar við það sem þið lærðuð í grunnskóla, getið þið labbað ykkur beint yfir á skrifstofuna og sagt ykkur úr skóla og sleppt því að eyða fjórum árum í vitleysu." Þá sló þögn á bekkinn. Vonandi hafði þetta einhver áhrif.

Sagði valdis kl. 16:58 | Skoðanir (6) | TrackBack

22. október 2004

Helgarfrí

Ég er búin að hirða helling af verkefnum af fólki, búin að færa inn mætingar, búin að mæta á skyndihjálparnámskeið... ég held ég megi fara heim núna.

Sagði valdis kl. 16:31 | Skoðanir (1) | TrackBack

21. október 2004

Fariði heim

Ég á ekkert barn í grunnskóla svo ég hef enga ástæðu til að fara heim. Hins vegar hvet ég alla þá sem eiga börn á grunnskólaaldri til að taka sér frí eftir hádegi og fara heim og vera hjá börnunum sínum. Þrýstið á samningsaðila í kennaradeilunni til að semja!

Sagði valdis kl. 13:02 | Skoðanir (3) | TrackBack

Stórskemmtilegar sögur

Hérna er alveg stórskemmtileg síða þar sem carola segir á alveg ótrúlega skemmtilegan hátt frá lífi sínu: lífið í öllum litum !

Hér er dæmi um hvað hún hefur að segja:

Ég rak upp stríðsöskur :Drepstu, helv....druslan þín, drepstu !!!!
Ég stökk með ægilegum Matrix snúningi upp á borðstofuborðið og þaðan á sófaborðið, flugudruslan sat á mynd af brosandi foreldrum mínum sem hékk á veggnum.
Ég horfði á fluguna og við náðum við augnkontakti, mér sýndist hún brosa.

Ég hvet ykkur eindregið til að lesa þetta, þetta er drepfyndið!

Sagði valdis kl. 10:46 | Skoðanir (0) | TrackBack

20. október 2004

Skálaferð

Ég kom til baka úr skálaferð í gærkvöldi, býsna gaman en mikið er ég rosalega fegin að þetta er búið. Krakkarnir stóðu sig nokkuð vel og ég þurfti ferlega lítið að skipta mér af þeim. Það er samt alveg ótrúlegt hvað þetta setur allt úr skorðum þegar meður er í burtu í rúman sólarhring inni í miðri viku. Ég kom í skólann í morgun en þá rifjaðist upp fyrir mér að það væri víst könnun fyrir menntamálaráðuneytið og barnaverndarstofu í fyrstu tímunum. Krakkarnir voru alveg ruglaðir yfir þessu, og ég er ekki frá því að kennararnir hafi verið það líka.

Þegar öllu þessu var lokið gafst mér loksins tími til að kíkja á tölvupóstinn minn (þar sem m.a. voru heilmiklar upplýsingar um þessa könnun) og það tók nú tímann sinn að plægja í gegnum það. Hrikalegt þegar allt er sett svona úr skorðum.

Sagði valdis kl. 15:02 | Skoðanir (0) | TrackBack

18. október 2004

Mjög góð helgi

Liðin helgi var alveg afskaplega góð, það verður að viðurkennast. Tónleikar á fimmtudagskvöld með Herði Torfa á Græna hattinum, haustþing framhaldsskóla á Norðurlandi á föstudag, kvöldmatur hjá tengdó á föstudagskvöld, kvöldmatur hjá Mömmu og Pabba á laugardagskvöld, kaffi hjá Láru, kóræfing og pizza í gær. Reyndar átti að vera inni í þessu plani kvöldmatur á Dalvík í gær, en eins og frægt er þá byrjaði að snjóa á fullu í gær og vetrardekkin eru ekki komin undir bílinn minn svo að það varð að bíða betri tíma. Inn í þetta rosa plan tókst okkur að flétta smá letitíma fyrir framan sjónvarpið, enda er það nauðsynlegt hverja helgi að liggja smá í leti.

Nú liggur bara fyrir að fara í skálaferð með bekknum á eftir og að setja vetrardekk undir bílinn.

Sagði valdis kl. 09:19 | Skoðanir (0) | TrackBack

14. október 2004

Mamma á afmæli í dag

Til hamingju með afmælið, Mamma!

Sagði valdis kl. 11:16 | Skoðanir (1) | TrackBack

13. október 2004

Kennslufall í MA

Mikið rosalega verð ég fegin í næstu viku þegar vonandi fellur ekki niður mikið kennsla... Nú er maður búinn á aðeins fjórum vikum að missa nemendur í:

Mikið væri það gott að mínu mati að geta fengið smá tíma með nemendunum svo það væri hægt að kenna þeim eitthvað!

Sagði valdis kl. 11:21 | Skoðanir (1) | TrackBack

Feitir ungir Íslendingar fá sér á broddinn

Það er kannski voða voða smekklaust að segja þetta en ég gat ekki annað en tengt saman tvö umræðuefni í Ísland í býtið í morgun. Annars vegar eru íslensk börn þau feitustu í Evrópu og hins vegar eru þau yngstu börnin í heiminum til að sofa hjá, 15,7 ára að aldri, hálfu ári yngri en næstu keppinautar þeirra, Þjóðverjarnir. Alveg fannst mér þetta merkilegt. Hvað getur maður sagt? Þau virðast nú geta fengið sér á broddinn þó þau séu feit! Kannski þurfa þau að setja meiri kraft í þetta. Heimaleikfimi er heilsubót!

Krakkar! Setjið meiri kraft í þetta! Brennið kaloríunum og notið smokk!

Sagði valdis kl. 08:11 | Skoðanir (3) | TrackBack

11. október 2004

Endalaus yfirferð

Úff.... 51 verkefni eftir... best að halda sig að verki...

Sagði valdis kl. 18:30 | Skoðanir (0) | TrackBack

10. október 2004

Filemaker Pro

Úff, ég verð að ranta aðeins um verkefni sem ég er með í gangi. Þeim sem forðast tæknimál er bent á að vinda sér beint í aðrar færslur.

Kannast einhver við það að hafa reynt að setja saman forrit í Filemaker Pro? Fyrir bölvaðan aumingjaskap fór ég út í það að nota þetta dót, m.a. vegna þess að mér var sagt að þetta væri alvöru gagnagrunnur. Þetta drasl er í einu orði sagt GAGNSLAUST og ég ætla við fyrsta mögulega tækifæri að færa viðkomandi gagnagrunn yfir í MySQL eða einhvern annan alvöru gagnagrunn. Hverjum dettur í hug í byrjun 21. aldar að segja að kerfi sem styður ekki alvöru SQL eða raunverulega relational gagnagrunna sé alvöru gagnagrunnur?? Ég er að lenda í þvílíkum vandræðum vegna þess að Filemaker er með svo mikla tengingu milli viðmóts og gagna að það er hérumbil vonlaust að ætla að nálgast gögnin nema maður smíði sér sérstaklega valmynd til þess. Til þess að reikna summu verður maður að búa til svæði inni í töflunni sem skilgreint er sem summa þannig að kerfið getur verið að bisa við það að reikna summur í hvert skipti sem gögn eru sótt, þó svo að þær séu hvergi notaðar!

Æi, ég er búin að fá nóg. Ég ætla að bisa nóg við þetta til að ná út gögnunum sem þurfa að notast núna og svo færi ég draslið í betra kerfi!

Sagði valdis kl. 15:45 | Skoðanir (6) | TrackBack

Þjóðaratkvæði um tiltekin mál í stjórnarskrá

Þegar öll þessi vitleysa um fjölmiðlafrumvarpið var í gangi í sumar var ég mjög mikið á því að þjóðin þyrfti að hafa rétt til að grípa inn í þegar ríkisstjórnin er að reyna að nauðga einhverju í gegn sem þjóðin er almennt séð á móti. Ég sá áðan að ég er ekki ein um þá skoðun: Þjóðaratkvæði um tiltekin mál í stjórnarskrá

Vel kemur til álita að tryggja að tiltekinn fjöldi atkvæðisbærra manna geti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu í einstökum málum við endurskoðun stjórnarskrárinnar, að mati Bjarna Benediktssonar, formanns allsherjarnefndar Alþingis. Bjarni lét þessi ummæli falla í pallborðsumræðum um stöðu lýðræðis og mögulegar umbætur á því, sem Háskóli Íslands og Morgunblaðið efndu til í HÍ í gær.

Ég vona bara að þetta komist í gegn og að hræðsluáróður stjórnarsinna um að þetta geti "skapað óvissu" virki ekki til að stappa þetta niður.

Sagði valdis kl. 11:31 | Skoðanir (0) | TrackBack

Yndisleg þögn

Ég ákvað að kíkja niður í skóla að vinna aðeins í nemendaskráningakerfinu fyrir Tónlistarskólann. Það er alveg ótrúlegt hvernig ég einhvenvegin tek ekki eftir óþægilegum umhverfishljóðum fyrr en allt í einu, og þá get ég þess vegna hafa setið innan um þau langtímum saman. Ég sat einmitt við tölvuna og þá allt í einu laust niður hugsuninni "mikill djöfulsins gengdarlaus hávaði er hérna!" og ég gat ekki annað en farið og leytað uppi rót vandans. Í um tveggja og hálfs meters fjarlægð frá mér fann ég:

Eftir að hafa slökkt á þessum tækjum var ástandið miklu skárra en þá varð samt eftir djúpt suð sem einhvernvegin var ennþá verra en öll hin til samans... Ég rann á hljóðið og fann á endanum hátalara í gangi einhversstaðar á bak við borðtölvurnar. Þegar þeir voru komnir úr umferð var þögnin yndisleg.

Getur einhver verið hissa á því að stærðfræðikennararnir hérna fari alltaf heim með hausverk??!! Með allt þetta drasl í gangi er bakgrunnshávaðinn alveg heilmikill, en einhvernvegin tekur maður ekki eftir þessu þegar er fleira fólk og önnur hljóð í gangi.

Sagði valdis kl. 10:00 | Skoðanir (1) | TrackBack

8. október 2004

Kannast einhver við þetta?

Sumir eiga svo erfitt með að taka gagnrýni á hugmyndirnar þeirra. Þeir verja þær með kjafti og klóm og taka allri gagnrýni sem persónulega árás. Dilbert súmmeraði þetta mjög vel í dag.

dilbert2004114644008.gif

Sagði valdis kl. 12:00 | Skoðanir (1) | TrackBack

7. október 2004

Löng nöfn skráð í þjóðskrá

Sá þessa frétt áðan á mbl.is: Löng nöfn skráð í þjóðskrá

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur endurflutt þingsályktunartillögu sína, frá síðasta þingi, um að ráðin skuli bót á því að löng nöfn eru ekki skráð í þjóðskrá. Beinir hann því til ráðherra Hagstofu Íslands að finna lausn á þessu.

Held það sé kominn tími til. Fáráðlegt að láta svona pínulítið tæknilegt atriði hafa svona mikil áhrif. Auðvitað á að vera hægt að skrá heil löng nöfn í þjóðskrá!

Sagði valdis kl. 10:27 | Skoðanir (4) | TrackBack

6. október 2004

Persónuleikapróf

Take the quiz: "Which Student from Harry Potter are you?"

Hermione Granger
Yea! You are Hermione Granger! You are the intelligent one out of all your friend and you always strive for perfection. You prefer to think things through before acting, and you are determined to impress everyone. While you're brain power does get you out of allot of things, you should try to relax a little bit. Perfection is unattainable, you know.

Take the quiz: "What Disney Princess Are You?"

Jasmine
Huge house, tiger, flying carpet, the heart of a man. What more could a girl ask for?

Sagði valdis kl. 14:09 | Skoðanir (0) | TrackBack

Söngsalur :)

Áðan var fyrsti söngsalur vetrarins. Ég stóðst það enganvegin að syngja með... fjögurra ára skilyrðing gerir mann hérumbil ófæran um að standast það að syngja með þegar mikill fjöldi fólks hefur upp raddir sínar saman. Hrikalega var þetta gaman, m.a. voru kennararnir settir upp á svið til að dansa fyrir nemendur, þeim til ómældrar skemmtunar. Gaman af þessu.

Sagði valdis kl. 10:46 | Skoðanir (0) | TrackBack

Eyða í fyrsta tíma

Mikið hrikalega er það nú þægilegt að koma í skólann og uppgötva að bekkurinn sem maður ætlaði að kenna í fyrsta tíma er í skálaferð. Nú hef ég eyðu sem ég get notað til að blogga, skoða póstinn minn, taka til í hrúgunni sem ég hef fengið frá spam-vélinni sem kallar sig MA og skoða teiknimyndasögurnar. Þægilegt.

Sagði valdis kl. 08:39 | Skoðanir (0) | TrackBack

5. október 2004

Snörl

Ég get ekki fundið það hjá mér að vera hrifin af þessu veðri. Því miður. Mér finnst þetta veður vera alveg hræðilegt. Öll rigningin í gær var alveg hræðileg, en að fá slyddu og snjókomu í dag finnst mér bara hræðilegt. Ég er komin með nefrennsli og eymsli í hálsinn og vorkenni sjálfri mér alveg hræðilega.

Sagði valdis kl. 13:33 | Skoðanir (3) | TrackBack

3. október 2004

Sorgarstund - himnarnir gráta

Marina Tern lést í gær. Marina var sjötta stigs galdranotandi af reglu hvítu kuflanna. Marina, dóttir sjómanns, ólst upp í þorpinu Alsip á vesturströnd Abanasinia en fluttist tíu ára að aldri til Qualinesti með álfinum Quilthanasalas þar sem hún lærði galdra til sextán ára aldurs.

Þá tók við flökkulíf þar sem Marina tók saman við hóp ferðalanga og ferðaðist til Palanthas. Eftir að hafa bjargað dýrmætu sverði úr höndum geðsjúks manns gafst færi til að ferðast aftur til Abanasinia þar sem Marina tók próf í galdranotkun sem gaf henni möguleika á að auka á hæfileika sína á sviðinu. Þeir nýttust vel í næstu ferð hópsins þar sem galdrarnir hennar reyndust ómetanlegir til að ráða niðurlögum margra skrímsla. Undir lok ferðarinnar reyndust þeir samt ekki duga til því að hópurinn rakst á svartan dreka sem spýtti sýru á hópinn. Marina lést samstundis. Fórn Marinu var þó ekki til einskis því að hópurinn náði að ráða niðurlögum drekans, ekki síst fyrir tilstilli hugrakka riddarans í hópnum.

Marina lætur eftir sig frettuna Mónu og ástsjúkan aðdáanda að nafni John Tabot í Palanthas.

Sagði valdis kl. 21:10 | Skoðanir (3) | TrackBack

1. október 2004

Óendanlegur dugnaður... óendanleg þreyta

Ég var svo dugleg í gær að ég er að borga fyrir það núna. Ég fékk hillurnar mínar sendar heim sem ég keypti í fyrradag og setti þær saman. Edda systir kom til að hjálpa til, enda erum við alvanar í húsgagnasmíði og satt best að segja þá eru hillurnar svo massívar og stórar að það hefði verið óðs manns æði að ætla að setja þetta alveg saman ein. En hillan komst sem sagt upp og þá leit íbúðin út eins og miðbærinn í Bagdad. Þá hófst næsta skref.

Ég henti eins miklu af bókum upp í hilluna eins og ég gat, flatti kassana sem losnuðu og fór með þá út í gám. Færði kassana úr horninu og setti tölvuborðið þar (setti dúk á borðið því það er skemmt). Færði tölvuna af sjónvarpsborðinu yfir á tölvuborðið, tengdi hana. Færði sjónvarpið af kommóðunni yfir á sjónvarpsborðið. Sópaði gólf, fór fram í þvottahús með óhreinan þvott, tók kassana sem voru eftir og staflaði þeim í skotið inni í herbergi og fór með helling af drasli niður í geymslu.

Datt örþreytt í rúmið.

Ég vaknaði svo úrvinda að það mætti halda að ég hefði bara ekki sofið. En það sem skiptir máli: íbúðin lítur út eins og mannabústaður.

Sagði valdis kl. 11:59 | Skoðanir (0) | TrackBack