« Óendanlegur dugnaður... óendanleg þreyta | Heim | Snörl »
Sorgarstund - himnarnir gráta
Marina Tern lést í gær. Marina var sjötta stigs galdranotandi af reglu hvítu kuflanna. Marina, dóttir sjómanns, ólst upp í þorpinu Alsip á vesturströnd Abanasinia en fluttist tíu ára að aldri til Qualinesti með álfinum Quilthanasalas þar sem hún lærði galdra til sextán ára aldurs.
Þá tók við flökkulíf þar sem Marina tók saman við hóp ferðalanga og ferðaðist til Palanthas. Eftir að hafa bjargað dýrmætu sverði úr höndum geðsjúks manns gafst færi til að ferðast aftur til Abanasinia þar sem Marina tók próf í galdranotkun sem gaf henni möguleika á að auka á hæfileika sína á sviðinu. Þeir nýttust vel í næstu ferð hópsins þar sem galdrarnir hennar reyndust ómetanlegir til að ráða niðurlögum margra skrímsla. Undir lok ferðarinnar reyndust þeir samt ekki duga til því að hópurinn rakst á svartan dreka sem spýtti sýru á hópinn. Marina lést samstundis. Fórn Marinu var þó ekki til einskis því að hópurinn náði að ráða niðurlögum drekans, ekki síst fyrir tilstilli hugrakka riddarans í hópnum.
Marina lætur eftir sig frettuna Mónu og ástsjúkan aðdáanda að nafni John Tabot í Palanthas.
Ritað 3. október 2004 kl. 21:10 um roleplay| Skoðanir (3) | Tilvísanir (2)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/26
Síður sem vísa í færsluna: Sorgarstund - himnarnir gráta:
» The Windy City frá Vefdagbok Tryggva
Sumir halda að Chicago hafi fengið þetta gælunafn vegna vinda en heiðurinn eiga víst stjórnmálamenn og belgingurinn í þeim fyrir löngu síðan (c.a. 1870 segja sumir). Reykjavík gæti samt staðið undir þessu nafni af eiginlegum og óeiginlegum ástæðum núna... Lesa meira...
Tilvísun gerð þann 04.10.04 19:06
» Föstudagskvöldið frá www.ValdísBjörk.com
Við hittumst á föstudagskvöld og spiluðum, fyrst Elva systirákvað skyndilega að koma yfir á réttan landshluta. Þar sem galdrastelpan mín var langt frá góðu gamni og Tryggvi var fyrir sunnan bauð hann mér að spila álfastelpuna hans, gegn því að... Lesa meira...
Tilvísun gerð þann 31.10.04 16:23
Skoðanir
Jú, ég er ekki frá því að það sé skrifað í stjörnurnar að annar galdrakarl sé á leiðinni...
4. október 2004, kl. 13:04
Blessuð sé minningar hennar, hún barði eins og besti fighter. Það þurfti nú að halda aftur af kendernum svo hann færi ekki að gramsa til að reyna að finna eitthvað verðmætt :|
Nú er bara spurning hvort það birtist ekki nýr galdrakarl einhversstaðar...