« Á ég að þora...? | Heim | Föstudagskvöldið »

Tunglmyrkvi

Svona getur gerst ef maður fylgist ekki með. Ég hélt að ég væri með það nokkurn veginn á tæru hvenær sól- og tunglmyrkvar væru og því kom það alveg aftan að mér að heyra að það myndi verða tunglmyrkvi síðastliðna nótt. Auðvitað fór mín á stúfana og reddaði myndavél og vaknaði svo tvisvar í nótt til að taka myndir af atburðinum. Það gekk ágætlega að ná myndum af almyrkvanum en flestar myndir af deildarmyrkvanum urðu hristar. Þær skástu eru samt komnar inn á myndasafnið.

Ritað 28. október 2004 kl. 10:56 um myndir| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/49

Skoðanir

1.
Elva
28. október 2004, kl. 15:40

Ég ætlaði svo að vakna til að sjá en það er greinilegt að ég hef enga stjórn á svefnvenjum mínum þessa dagana. Ég gat ekki vaknað :(
En það var gott að einhver hafði rænu í nótt ;)

2.
Valdís
28. október 2004, kl. 15:57

Ég hef það eftir áræðanlegum heimildum að í borg bleytunnar hafi ekki verið skyggni til að skoða þennan tunglmyrkva, á meðan það var heiðskírt hér. Þannig að það var eins gott fyrir þig bara að sofa ;)