« Úff.... | Heim | Skýringin komin... »

Af hverju utanríkisráðherra?

Það er eitt sem ég skil ekki, kannski er ég bara svo einföld. Í gær kom í fréttum að Halldór forsetisráðherra og Davíð Oddson utanríkisráðherra myndu boða deiluaðila í kennaradeilunni á sinn fund í dag. Ég spyr bara: Hvað kemur kjaradeila kennara utanríkisráðherra við?? Hvernig getur það mögulega snert utanríkismál? Og, af hverju eru ekki menntamálaráðherra og fjármálaráðherra viðstaddir???

Ritað 11. nóvember 2004 kl. 08:09 um menntamál| Skoðanir (5) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/53

Skoðanir

1.
Doppa
11. nóvember 2004, kl. 08:29

Já var einmitt að velta þessu sama fyrir mér. Það er nú alveg greinilegt hver stjórnar þessu öllu saman og ekki er það greyið Halldór!!

2.
Gísli
11. nóvember 2004, kl. 08:33

Halldór Ásgrímsson er forsætisráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar.

3.
Elva
11. nóvember 2004, kl. 09:51

Hmm? Ja, kannski á bara að senda þessa erfiðu kennara úr landi?

4.
Valdís
11. nóvember 2004, kl. 10:01

Ahhhh! Þarna kom það! Auðvitað þarf utanríkisráðherra að koma að því ef það þarf að senda nokkur þúsund manns úr landi á einu bretti ;)

5.
Elva
11. nóvember 2004, kl. 20:05

Ok, mamma slapp við að vera gerð útlæg, þeir ætla víst bara að setja lög á hana!