« Árshátíð í kvöld :D | Heim | Ruslpóstur... »

Mánudagsmorgun...

... á fætur ég fer, höfuðið á mér... er bara í fínu lagi því að ég bragðaði varla dropa af áfengi um helgina, fyrir utan rauðvínsglasið með bolanum í gærkvöldi. Ohhhhh, hvað það var góður boli! MUUUUUU! Mjúkur og góður! Ég lifi ennþá í minningunni. Reyndar er ég hrikalega þreytt núna, enda vaknaði ég snemma til að skutla Tryggva í flug. Það ættu að vera lög gegn því að maður sjái nokkurntíma hvernig klukkan lítur út fyrir klukkan sjö... nema maður hafi vakað alla nóttina. Þá er maður líka væntanlega betur stemmdur fyrir það. Svo verður manni eitthvað svo miklu minna úr svefni þegar tveir deila rúmi sem er eiginlega bara fyrir einn og hálfan í mesta lagi. Jeminn, hvað mig langar til að leggja mig.

Árshátíðin var annars mjög góð, en ég var frekar svikin, því að við Tryggvi bjuggumst bæði við moðsteiktum vegaverkfræðingi eins og venja er að hafa á slíkum samkomum, en svo var bara moðsteiktur grís! Sjúklega góður grís, en samt enginn vegaverkfræðingur! Annars nenntum við ekki að vera á ballinu, heldur laumuðum okkur í burtu þegar myndatakan var búin.

Nú, svo var manni þvælt út um allt um helgina og ég hitti ótæpilegt magn af öfum og ömmum. Ótrúlega góð helgi, gott sambland af leti og dugnaði, við náðum meira að segja að leggjast í leti og horfa á Buffy.

Ritað 29. nóvember 2004 kl. 09:17 um mitt| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/62

Skoðanir

1.
Tryggvi R. Jónsson
29. nóvember 2004, kl. 12:20

Fín helgi og eina slæma við hana að þessi morgunferð okkar var svo gott sem gagnslaus. Lenti ekki fyrr en rúmlega 10 í borg bleytunnar (hálkunnar í þessu hitastigi).
Annars á nú eftir að koma í ljós hvort ég eigi eftir að verða fyrir varanlegu tjóni af þessum Buffy þáttum ;)

2.
Valdís
29. nóvember 2004, kl. 16:34

Ég efast ekki um það að Buffy hefur valdið þér varanlegu tjóni ;) Ég er eiginlega bara alveg viss um það.