« Af hverju utanríkisráðherra? | Heim | Undarleg samblanda leti og dugnaðar »

Skýringin komin...

Ja, það hefur útskýrst af hverju Davíð þurfti að vera á þessum fundi í gær. Halldór er greinilega ennþá handbrúðan hans Davíðs og svo virðist sem Davíð sé með hendina svo langt uppi í rassinum á Halldóri að hann getur kítlað í honum hálskirtlana. Úff. Ég biðst afsökunar á mjög svo ómálefnalegri athugasemd en ég varð bara að koma þessu frá mér.

Þetta er annars hámark óréttlætisins. Kennarar hafa reynd frá því a.m.k. á svipuðum tíma í fyrra að semja við sveitarfélögin. Viku eftir viku fengum við fréttir frá FG um hvað væri verið að gera í kjaramálum kennara. Viku eftir viku voru það svipaðar fréttir, FG sendi sveitarfélögunum gögn, sveitarfélögin gerðu lítið til að mjakast í átt til samninga. Í mars runnu samningar svo út án þess að sveitarfélögin hefðu tekið þátt í viðræðum af nokkurri alvöru. Þá var kosið um verkfall. Verkfall skall á og nú á að setja lög til að þvinga kennara til að snúa aftur til starfa. Hrikalegt. Kennarar eru í þeim aðstæðum að fá viðsemjendur sína ekki einu sinni til að hefja viðræður af alvöru fyrr en eftir dúk og disk, verkfall þeirra hefur í raun engin neikvæð fjárhagsleg áhrif á viðsemjendur þeirra og svo á nú að setja fordæmi fyrir því að ríki og sveitarfélög þurfi ekki einu sinni að semja af alvöru við kennara, það sé nóg að bíða bara nógu lengi og þá eru sett lög. Ríkisstjórnin lætur eins og vandamálið komi henni ekki við, það sé ekki mál ríkisins að rýmka fyrir fjárstreymi til skólanna til að auðvelda lausn málsins. Þó að Össur Skarphéðinsson segi oft marga undarlega hluti verð ég að vera sammála honum um það að "ekki hefði komið til þessarar stöðu ef ríkisstjórnin hefði sýnt sanngirni í garð sveitarfélaga varðandi tekjuskiptingu". (Frétt á mbl.is) Ég er ekki bjartsýn.

Ritað 12. nóvember 2004 kl. 11:53 um menntamál| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/54

Skoðanir

1.
elva
12. nóvember 2004, kl. 12:49

Heyr, heyr!!

2.
Tryggvi R. Jónsson
12. nóvember 2004, kl. 13:46

Mér finnst þetta alveg til háborinnar skammar út í eitt :| svona meðferð á starfsfólki er alveg á mörkum þess að vera grimmileg.
Það er alger óþarfi að fara illa með fólk þó það sé að sinna hálfgerðu hugsjónastarfi :(