« Q.E.D. | Heim | Bloggfest »
Stærðfræðinámskeið
Það er svo margt undarlegt sem maður gerir þegar maður er stærðfræðikennari, eitt af því var að fara á námskeið um helgina. Flötur, félag stærðfræðikennara, hélt námstefnu fyrir okkur í VMA á föstudag og laugardag og þar fengum við að kynnast ýmsum nýjum hlutum. Eins og krakkar í dótabúð fengu stærðfræðikennararnir stundum stjörnur í augun og andvörpuðu "Svona langar mig í!" Þetta gerðist t.d. þegar Jón Eggert Bragason sýndi notkun á gagnvirkri töflu í kennslu við MK og þegar Jóna Guðmundsdóttir kynnti fyrir okkur forritið FX-Draw. Við störðum opinmynnt á hvernig var hægt að teikna upp pýramída og sívalninga án nokkurrar fyrirhafnar og hvernig mátti setja hnitakerfi inn í próf án þess að þurfa að eyða fleiri klukkutímum í að föndra eitthvað í Word eða klippa og líma á gamla mátann.
Ég skal reyndar ekki halda því fram að ég hafi talið allt það sem þarna fór fram vera neitt sérstaklega gagnlegt, en ég held að ég hafi haft töluvert gagn af þessu.
Ritað 22. nóvember 2004 kl. 09:20 um stærðfræði| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/57
Skoðanir
Ég á rosalega erfitt með að sjá fyrir mér forrit sem vinnur með eigindleg gögn ;)
22. nóvember 2004, kl. 16:38
Ohh, ég skil þig! Þessi leikföng hafa örugglega virkað svipað á þig og á mig þegar kynnt var vinnslu forrit fyrir eigindlegar rannsóknir í eigindlegum 2 í fyrra. *Slef* ;)