« Stormur á norðurlandi | Heim | Skerðing náms til stúdentsprófs »
Spilakvöld
Magnus Cro fór í ferðalag með Föruneyti Drekabanans í gærkvöldi. Á seinasta spilakvöldi enduðum við í Waterdeep eftir að hafa hoppað á milli planes, þvælst um inni í rúbín og drepið mann og annan í Himnaborg. Nú var lagt af stað og reynt að komast að því hvað við ættum að gera. Lloth hafði sent okkur af stað að finna og drepa Albínóann en við vissum ekki hvar eða hvernig ætti að byrja þá leit. Leit okkar leiddi okkur til Mariöllu af Lurien sem sendi okkur bæði að finna köttinn hennar og að sækja flautu frá gullnum dreka. Drekinn reyndist hafa glatað flautunni til rauðs dreka sem fékk fljótlega gælunafnið Þarmahor. Við ákváðum að reyna að sækja flautuna aftur og ráða niðurlögum rauða drekans ef þörf kræfi. Þar gengum við reyndar beint í gildru hans og strax í fyrstu atlögu hans lágu bæði kenderinn Peewee og galdrakarlinn Magnus Cro örendir. Það var aðeins farið að slá í þá báða þegar hópurinn komst aftur til Waterdeep og gat látið lífga þá við.
Ritað 30. janúar 2005 kl. 14:40 um roleplay| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/92