« Mín á erfitt í dag... | Heim | Flott tilvitnun »

Meiri skerðing náms til stúdentsprófs

Mamma benti mér á grein hjá og strax morguninn eftir fékk ég ábendingu um sömu grein frá Brynjólfi. Ég ákvað að kíkja á málið og sá að þar hafði Ingólfur Gíslason stærðfræðikennari tekið saman alveg frábæra grein sem einhvernveginn tekur saman flest sem ég vildi segja um málið. Ég var búin að vera að bagsa við það að skrifa eitthvað um skerðingu náms til stúdentsprófs, en það kom ekki nógu vel út. Ég er greinilega ekki eins góður pen[n]i og Ingólfur. Endilega lesið greinina, hún er skemmtileg og ekki bara fyrir einhverja kennslufærðispekúlanta. Takk fyrir ábendinguna, bæði Mamma og Brynjólfur ;)

Ritað 4. febrúar 2005 kl. 17:01 um menntamál| Skoðanir (4) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/97

Skoðanir

1.
Ragna
4. febrúar 2005, kl. 19:24

neibb þú ert alveg greinilega ekki jafngóður penni þar sem það eru tvö enn í penni en ekki eitt!! :-)

2.
Tryggvi R. Jónsson
4. febrúar 2005, kl. 21:01

Jahá, ég er sammála Ingólfi, þetta er vel framsett grein og segir margt í tiltölulega stuttu máli. Góð ábending hjá þeim báðum ;)
Annars hefur riddarinn líka rétt fyrir sér ... rak einmitt augun í þetta ;)

3.
Valdís
5. febrúar 2005, kl. 13:09

Athugasemd meðtekin. Breyting framkvæmd. Vildi samt ekki Bjössa þetta, þannig að breytingin kom inn í hornklofa ;)

4.
Elva
5. febrúar 2005, kl. 19:27

Já, ég var að spá í hvað þessi hornklofi var að gera þarna ;)