« febrúar 2005 | Main | apríl 2005 »

30. mars 2005

Back to business

Skólinn er byrjaður aftur og ég farin að kenna (til/öðrum um). Eins og ævinlega þá var síðasta nóttin mín í fríi undarleg, ég var alltaf að vakna og vesen á mér. Ég komst nú samt framúr á siðsamlegum tíma og er búin að leiða fólk í allan sannleikan um alfa-beta, 30/60/90 þríhyrninga, ójöfnur og líkindi samræmanlegra atburða (ekki allt sama fólkið samt). Svo er stefnt á smá bíó í kvöld og ég held að ég fari einhverja mjög örugga leið og vona að nú komist ég klakklaust niður í bíó, sjái mynd sem er ekki óendanlega leiðinleg og komist með heilan bíl til baka aftur. Ef það tekst þá er bíó-óheppni mín vonandi á enda... 7-9-13!

Sagði valdis kl. 14:40 | Skoðanir (4) | TrackBack

23. mars 2005

Páskafrí

Ég er að njóta þess að vera í páskafríi, en það felur m.a. í sér að ég svef frameftir og geri mest ekki neitt. Ég fer lítið á netið, sem útskýrir af hverju ég hef ekki bloggað í smá tíma.

Ég er samt ekki alveg aðgerðalaus. Í gær sýndi ég t.d. óendanlegan dugnað þegar ég fór og keypti pottamold, potta, vikur og leirkúlur og umpottaði þremur plöntum sem ég á, á meðan Tryggvi fór og gerði afa sinn timbraðan (s.s. sótti timbur handa honum). Þessi plöntugrey hafa lifað af ótrúlega vanrækslu af mínum höndum, lokaðar inni í myrkri langtímum saman, vökvaðar mjög óreglulega og allskonar hitasveiflur þar að auki. Ég ætla samt núna að reyna að fara betur með þær og hugsa betur um þær. Draga frá gluggum, vökva reglulega og umpotta. Sjáum nú til hvort þær hressist ekki.

Sagði valdis kl. 18:20 | Skoðanir (0) | TrackBack

17. mars 2005

Blessuð sólin sýnir sig...

...svona eins og gengur.
Það er ekkert að marka mig,
Því mér er svo illt í hendinni.

Pabbi kenndi mér þessa vísu í gamla daga en hún hefur verið ofarlega í huga mér í gærkvöldi, nótt og í dag. Einhver skrattans verkur er að trufla mig, sennilega er eitthvað klemmt eða eitthvað. Ég sofnaði seint og illa því ég gat hvergi sett hendina án þess að verkurinn yrði allt of mikill. Verkurinn er enn til staðar, aðeins minni núna, en ef hann er ekki á leiðinni í burtu um hádegi er ég farin yfir á FSA til að láta líta á þetta.

Það er þó bót í máli að MA vann í gær :D Víííí!!

Sagði valdis kl. 08:01 | Skoðanir (8) | TrackBack

10. mars 2005

Syndaflóðið og þróunarkenningin

Ég heyrði skemmtilega sögu um daginn frá Þóri Haraldssyni, líffræðikennara við MA. Mig langar ógurlega til að láta hana ganga áfram. Sagan var af samræðum Þóris við Votta Jehóva, þar sem þeir ræddu um það hvort þróunarkenningin gæti staðist, eða hvort Biblían væri sönn í bókstaflegum skilningi. Þórir vakti máls á sögunni um syndaflóðið og spurði Vottann:
"Í syndaflóðinu tók Nói með sér í Örkina allar lífverur sem ekki þoldu vatnalíf, er það ekki?"
"Jú," svaraði Votturinn.
"Þá erum við að meina ALLAR lífverur, líka bakteríur og svoleiðis?" spurði Þórir.
"Jújú, allar lífverur," svaraði Votturinn.
"Það hlýtur að þýða að syfílis bakterían hafi verið með líka, er það ekki?" spurði Þórir.
"Ummm... jú..." svaraði Votturinn með semingi.
"Gæti nokkuð verið að hún hafi breyst eitthvað síðan þá? Erum við ekki að tala um eins bakteríur eins og finnast nú í dag?" spurði Þórir.
"Nei, hún getur alls ekki hafa breyst. Allar lífverur voru fullskapaðar í endanlegri mynd þegar syndaflóðið átti sér stað," svaraði Votturinn fullviss.
"En, syfílis bakterían, eins og hún er í dag, lifir ekki nema 3-4 tíma utan líkama hýsils. Syndaflóðið entist í 40 daga og 40 nætur! Fyrst syfílis bakterían lifði af, þá hlýtur Nói eða einhver úr fjölskyldu hans að hafa verið sýktur! Getur það samrýmst boðskapi Biblíunnar?" spurði Þórir.
"Um... þetta verð ég að bera undir félaga minn sem er læknir," sagði Vottinn sem fór og hefur ekki sést síðan.

Sagði valdis kl. 15:01 | Skoðanir (4) | TrackBack

Veikindadagur

Þegar maður leggst niður í veikindi og aumingjaskap þá þarf maður að hafa eitthvað að gera... ég þarf þess allavegana, finnst afskaplega leiðinlegt að sitja heima og stara út í loftið. Það er einna verst ef veikindin eru af því tagi að maður sé með of mikinn hausverk til að lesa eða horfa á sjónvarpið... allra verst samt ef maður hefur ekkert til að horfa á...

Ég lagðist allavegana í veikindi í fyrradag og lá áfram í gær, almennur slappleiki og aumingjaskapur í gangi. Sem betur fer hafði ég ýmislegt á prjónunum... bókstaflega ;) Ég kláraði bangsapeysuna sem ég var þegar byrjuð á og byrjaði á buxum sem eiga að vera með henni. Svo tók ég mig til þegar Ragna kom heim og þjóðnýtti myndavélina hennar til að taka myndir af því sem er tilbúið. Afraksturinn er kominn inn á myndasafnið.

Sagði valdis kl. 12:14 | Skoðanir (4) | TrackBack

2. mars 2005

Phantom of the Opera

Ég er að fara í bíó á eftir. Framtakssamir nemendur í MA standa fyrir sérstakri forsýningu á myndinni Phantom of the Opera í Nýja Bíó, en myndin verður frumsýnd á Íslandi 4. mars. Ég hlakka til að sjá þetta því að allar auglýsingar sem ég hef séð um myndina benda til þess að hún sé verulega vönduð, auk þess sem mér finnst þetta verk alveg frábært. Einnig hlakka ég til að sjá hvað hefur breyst miðað við söngleikja uppsetninguna, því að ég sá verkið á sviði í London fyrir nokkrum árum. Þetta verður gaman.

Sagði valdis kl. 15:11 | Skoðanir (2) | TrackBack

1. mars 2005

Pólitísk staða

Ég tók áðan Political Compass prófið sem Tryggvi, Edda og Elva voru öll búin að taka. Niðurstöður mínar eru svona:

Your political compass
Economic Left/Right: -4.25
Social Libertarian/Authoritarian: -3.38

Ég er sem sagt vinstri sinnuð (aðeins rauðari en Edda en þó ekki jafn rauð og Tryggvi og Elva) og frekar frjálslynd (þó töluvert meiri fyrirhyggjusinni en Edda, Elva og Tryggvi).

Sagði valdis kl. 14:21 | Skoðanir (3) | TrackBack