« Pólitísk staða | Heim | Veikindadagur »
Phantom of the Opera
Ég er að fara í bíó á eftir. Framtakssamir nemendur í MA standa fyrir sérstakri forsýningu á myndinni Phantom of the Opera í Nýja Bíó, en myndin verður frumsýnd á Íslandi 4. mars. Ég hlakka til að sjá þetta því að allar auglýsingar sem ég hef séð um myndina benda til þess að hún sé verulega vönduð, auk þess sem mér finnst þetta verk alveg frábært. Einnig hlakka ég til að sjá hvað hefur breyst miðað við söngleikja uppsetninguna, því að ég sá verkið á sviði í London fyrir nokkrum árum. Þetta verður gaman.
Ritað 2. mars 2005 kl. 15:11 um bíó| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/113
Skoðanir
En...var hann í afskræmdum kjólfötum? Æji bara það er það sem mér dettur í hug þegar minnst er á óperuhús og gyllta engla í sömu andrá ;)
3. mars 2005, kl. 12:27
Það kom í ljós að myndin var stórgóð! Skemmtilega farið með verkið og mér fannst t.d. gaman að sjá að skreytingar í óperuhúsinu í myndinni voru mjög svipaðar þeim skreytingum sem voru í leikhúsinu í London. Gylltir englar og svoleiðis. Frábær tónlist og mjög vel sungið.