« mars 2005 | Main | maí 2005 »
28. apríl 2005
Ný almenn braut við MA
Nú ætlar MA að fara af stað með nýja almenna braut við skólann þar sem þeir nemendur sem ná mjög góðum einkunnum úr 9. bekk (8 og yfir) hafa möguleika á að innritast á almenna braut I við MA. Þessi almenna braut er tveggja anna nám sem gefur nemendunum rétt til að innritast svo beint inn á annað ár við MA. Ef ekki tekst að ná tilætluðum námsárangri er möguleikinn fyrir hendi að innritast í 1. bekk með jafnöldrum og einnig hafa nemendur þann möguleika að innritast í aðra framhaldsskóla eins og þeir hafi lokið 10. bekk.
Hvaða kostur getur við þetta kerfi? Jú fyrir nemendurna er það ótvíræður kostur að takast á við krefjandi nám og fá að klára sitt stúdentspróf 19 ára. Oft fær þessi nemendahópur ekki verkefni við hæfi í grunnskólanum sínum þar sem orka kennarans fer frekar í þá sem eiga erfiðara um vik. Á þessari braut verða smáir hópar, 15 manns, og lögð verður sérstök áhersla á þarfir einstaklingsins, enda verða þessir nemendur ári yngri en gengur og gerist um fyrstu bekkinga.
Fyrir skólann er ótvíræður kostur sá að MA hefur í mörgum tilfellum verið að missa þessa nemendur í aðra skóla. Þessir topp nemendur hafa getað tekið staka byrjunaráfanga við aðra skóla og þegar kemur svo að því að velja framhaldsskóla geta áfangaskólarnir boðið þeim að innritast beint inn í framhaldsáfanga á meðan MA gat ekkert boðið nema göt í stundarskrá. Auðvitað hlýtur að vera metnaður hvers skóla bæði að útskrifa sem best menntaða nemendur og líka að fá sem efnilegasta nemdendur inn, eftir því sem hægt er. Með því að bjóða upp á þessa braut verður MA betur samkeppnishæfur við aðra skóla.
Reyndar verður að taka tillit til þess að þessir nemendur sem koma á þessa braut munu koma án þess að hafa stundað nám í 10. bekk. Þar af leiðandi verður að huga sérstaklega að því sem kann að vanta í þeirra þekkingu og miða kennslu og yfirferð við það. Ég held samt að á heildina litið verði þetta spennandi tilraun sem á góða möguleika til að takast.
Sagði valdis kl. 14:34 | Skoðanir (7) | TrackBack
27. apríl 2005
Fleiri rottur
Sami sorgarleikurinn endurtók sig í morgun eins og í gær. Fljúgandi rotturnar komu aftur og sungu fyrir mig klukkan tæplega 6. Þegar ég kíkti út um gluggan sá ég að einhver hafði verið svo hugulsamur að skilja eftir franskar kartöflur úti á bílaplani. Þetta voru múkkarnir að rífa í sig með bestu lyst. Ég endaði með því að skella mér í buxur og bol og storma niður, út og tók bölvaðar frönskurnar og henti þeim. Múkkarnir voru ferlega fúlir, en fóru fljótlega eftir þetta. Ég skellti mér aftur í rúmið og svaf næstum því yfir mig. O, hvað ég vona að ég fái að sofa almennilega í fyrramálið, ég held að krakkagreyin verði hrædd við mig ef ég mæti alltaf úrill af svefnleysi.
Sagði valdis kl. 14:53 | Skoðanir (0) | TrackBack
26. apríl 2005
Fljúgandi rottur!
Ég vaknaði eldsnemma í morgun, klukkan 6. Ekki ánægð. Fyrir utan var ger af fljúgandi rottum AKA múkkum AKA hettumáfum, sem var búið að finna sér alveg optimal hljómburð milli blokkanna þar sem hvert einasta garg magnaðist upp margfalt. Það var greinilega hrikalega gaman hjá þeim, gætu hafa fundið rusl að éta eða eitthvað. Ég glaðvaknaði, lá og urranði á bölvaðar rotturnar. Af hverju gátu þær ekki bara verið þrestir? Ég meina, þrestir eru skaðræðiskvikindi, illgjarnir og frekir, en þegar þeir sitja í trjánum og syngja greddu- og karlrembusöngva, þá er þó skárra að hlusta á það en gargið í máfunum!
Sagði valdis kl. 11:51 | Skoðanir (7) | TrackBack
20. apríl 2005
Síðasti vetrardagur
Á morgun er sumardagurinn fyrsti. Vííí! Frí úr vinnunni og gaman. Það er verst að þegar er svona gott veður þá er maður svo lítið til í að vinna. Ég er með dágóðan stafla af prófum frá 2. bekk sem ég þarf að fara yfir og ég hef mig varla í það. Úti glennir sólin sig, enda er heiðskírt og ekkert til að skyggja á hana... nema auðvitað veggirnir á Möðruvöllum sem loka mig inni... Það er örugglega mannréttindabrot að láta fólk sitja á kennarafundum þegar svona veður er úti.
Sagði valdis kl. 15:04 | Skoðanir (3) | TrackBack
13. apríl 2005
Taka fréttamenn ekki hint?
Í gær kom forsetinn til MA og í tilefni þess var haldinn salur. Þar ávarpaði Bergþóra Benediktsdóttir formaður Hugins samkomuna og ræddi um þá ímynd sem birt er af ungu fólki m.a. í fjölmiðlum. Þegar ungt fólk hittist fyrir utan Alþingi til að mótmæla styttingu náms til stúdentsprófs var allt vel framkvæmt og mótmælin fóru vel fram, en það sem komst í fréttirnar var ungi maðurinn sem kastaði egginu. Þetta var ágætis ávarp hjá henni og maður hefði haldið að viðstaddir fréttamenn hefðu kannski mátt taka þetta aðeins til sín. Það var samt ekki svo.
Forsetinn flutti ávarp og að því loknu var opið fyrir spurningar frá nemendum. Þar var spurt um viðhorf til útlendinga sem flytjast til landsins, hvað forsetinn gerir annað en að fara í heimsóknir og hvort hann ætli að ræða um mannréttindi við Kínaforseta. Komust þessar spurningar í sjónvarpið? Nei, sú spurning sem komst í sjónvarpið var um klæðaburð forsetans! Þarna hefðu fréttamenn getað tekið hint en gerðu það bara ekki.
Sagði valdis kl. 13:01 | Skoðanir (2) | TrackBack
11. apríl 2005
Leikjafíkn
Hæ, ég heiti Valdís, ég er leikjafíkill. Ég spila ekki stanslaust en ég tek skorpur, eiginlega leikja-lotufyllerí. Þegar ég er sem verst haldin hugsa ég um leikinn sem ég er að spila, allan daginn í vinnunni og fer heim eins snemma og ég get til að spila meira. Nú er ég að spila Neverwinter Nights, alveg frábæran roleplay tölvuleik. Ógeðslega skemmtilegur. Það er bara skelfilegt hvað ég get sýnt mikil fíkla einkenni á meðan ég spila hann. Í gær ætlaði ég til dæmis að þvo rúmfötin mín og fara yfir nokkur heimadæmi í 103. Ekki svo voðalegar yfirgripsmiklar áætlanir. Það endaði nú samt þannig að rúmfötin eru ennþá skítug og ég mætti klukkan 6 í morgun niður í skóla til að drífa af þessi heimadæmi. Það hafðist nú, en þetta er náttúrulega sjúkt. Svo er maður ekki búinn að spila í gegn einu sinni þegar maður er farinn að hugsa um hvernig maður ætlar að gera þetta þegar maður spilar í gegnum þetta aftur... þá ætla ég að prófa að búa til monk/sorcerer og athuga hvernig það gengur...
Sagði valdis kl. 11:33 | Skoðanir (9) | TrackBack
7. apríl 2005
Á fólk sér ekkert líf??
Samkvæmt frétt á mbl.is þá er fólk þegar farið að safnast í biðröð fyrir framan bíóið þar sem Star Wars á að vera sýnt 19. maí. Við erum að tala um tæplega einn og hálfan mánuð þar sem þetta fólk er að bíða í biðröð. Þarf þetta fólk ekki að mæta í vinnu??? Ég hef gaman af Star Wars eins og margir aðrir, en þetta er bara sjúkt.
Sagði valdis kl. 13:13 | Skoðanir (1) | TrackBack
6. apríl 2005
Óskiljanleg viðbrögð
Getur einhver útskýrt þetta fyrir mér?
Stjórn kennarafélags MÍ segir af sérStjórn kennarafélags Menntaskólans á Ísafirði sagði af sér á fundi kennara síðdegis. Í fréttum RÚV var haft eftir Agnesi Karlsdóttur, formanni félagsins, að stjórninni hafi ekki verið sætt lengur vegna samskiptaerfiðleika við skólameistarann Ólínu Þorvarðardóttir. Aðalfundur Kennarafélags Menntaskólans á Ísafirði verður á föstudag.
Nú skil ég kerfið þannig að kennarafélag hvers skóla á að standa vörð um hagsmuni félagsmanna, sjá um samskipti við KÍ og svoleiðis. Stjórnin hlýtur að samræma aðgerðið í því. Hvernig í ósköpunum getur það þá verið hagsmunum félagsmanna fyrir bestu ef stjórnin segir af sér?? Ef kennararnir þarna eiga í vandræðum með skólameistarann þá hlýtur að vera best að standa sameinaðir í baráttunni. Hvernig getur það verið þeim fyrir bestu að vera allt í einu höfuðlaus her? Þetta lyktar pínulítið af múgæsingu.
Sagði valdis kl. 15:48 | Skoðanir (3) | TrackBack
5. apríl 2005
Aaaaaattssjjjúúúúúú!!!
Ég er svo kvefuð núna. Rautt nef eins og argasti róni, sífelldir hnerrar og nefrennsli. Aumingja nemendur mínir þurfa að horfa upp á mig að snýta mér trekk í trekk. Skárra reyndar en að ég láti hor leka á bækurnar þeirra þegar ég hjálpa þeim... Ég held reyndar að ég sé búin að snýta mér svo mikið að mig fari að vanta vökva í líkamann, allavegana þá er ég farin að verða þurr um augun. Kannski maður ætti bara að vera heima...
Sagði valdis kl. 16:39 | Skoðanir (4) | TrackBack
1. apríl 2005
Aprílgabb
Við (þ.e. Keli og krakkarnir A.K.A. stærðfræðikennararnir) erum búin að gera hallarbyltingu! Á meðan Níels er í burtu þá sætum við lagi og breytum ýmsu. Nú er búið að taka niður gömlu, ljótu, vondu, slæmu krítartöfluna sem alltaf glampaði á úr M6 og setja í staðinn nýja fína tússtöflu sem hægt er að draga upp og niður. Ég er svo ánægð!
Þetta var samt kannski ekki besti dagurinn til að gera þetta. Húsverðirnir vildu fá heilan dag þannig að Hóa greyið þurfti að finna sér pláss í öðrum stofum skólans þegar hún var að kenna þessa þrjá tíma sína. Kannski ekki besti dagurinn til að setja upp miða sem segir nemendum að fara þvert yfir skólann í aðra stofu? Hmmm...
Sagði valdis kl. 12:20 | Skoðanir (1) | TrackBack