« Á fólk sér ekkert líf?? | Heim | Taka fréttamenn ekki hint? »
Leikjafíkn
Hæ, ég heiti Valdís, ég er leikjafíkill. Ég spila ekki stanslaust en ég tek skorpur, eiginlega leikja-lotufyllerí. Þegar ég er sem verst haldin hugsa ég um leikinn sem ég er að spila, allan daginn í vinnunni og fer heim eins snemma og ég get til að spila meira. Nú er ég að spila Neverwinter Nights, alveg frábæran roleplay tölvuleik. Ógeðslega skemmtilegur. Það er bara skelfilegt hvað ég get sýnt mikil fíkla einkenni á meðan ég spila hann. Í gær ætlaði ég til dæmis að þvo rúmfötin mín og fara yfir nokkur heimadæmi í 103. Ekki svo voðalegar yfirgripsmiklar áætlanir. Það endaði nú samt þannig að rúmfötin eru ennþá skítug og ég mætti klukkan 6 í morgun niður í skóla til að drífa af þessi heimadæmi. Það hafðist nú, en þetta er náttúrulega sjúkt. Svo er maður ekki búinn að spila í gegn einu sinni þegar maður er farinn að hugsa um hvernig maður ætlar að gera þetta þegar maður spilar í gegnum þetta aftur... þá ætla ég að prófa að búa til monk/sorcerer og athuga hvernig það gengur...
Ritað 11. apríl 2005 kl. 11:33 um roleplay| Skoðanir (9) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/124
Skoðanir
Það er gott að hún hitti í mark ;)
Máttu vera monk/sorcerer? Nebbla í nýja kerfinu þá geturðu byrjað sem monk og orðið svo eitthvað annað en þá hættirðu að vera monk. Þú heldur hit punktunum þínum og einhverjum örfáum smáatriðum en þú ert ekki monk lengur. Ég held að maður verði að vera monk eða ekki monk, nema maður fái sér svona prestige class, ég á eftir að kynna mér svoleiðis betur. Veit ekki alveg hvernig það virkar, það stendur bara að það séu upplýsingar um það í dm og ég er ekki komin í hana enn.
En ég skil þetta með LLG, ég held að þetta sé að ganga. Amk erum við Doddi illa haldin af Icewind Dale 2 þessa dagana.
hehe hef aldrei haft tíma eða gefið mér hann fyrir tölvuleikjafíkn (kannski sem betur fer sýnist mér)
Já, Álfhildur, vertu fegin, þetta er íllvígur kvilli!! ;)
hehe kannski veit ég meira um þessa fíkn en ég vil vera láta þó hún hrjái mig ekki .. ennþá
NWN er (að ég best fæ séð...) byggður á v3.0 og jafnvel dálítið frjálslega á köflum. Ég veit allavega um einn sem spilaði í gegnum hann sem monk/wizard og líkaði vel, nefndi allavega ekki að þessi restriction væri í honum.
Annars um monk og multi-class í v3.5:
Like a member of any other class, a monk may be a multiclass character, but multiclass monks face a special restriction. A monk who gains a new class or (if already multiclass) raises another class by a level may never again raise her monk level, though she retains all her monk abilities.
--
Það er annars hellingur um Epic/Prestige classa, spells og feats í Complete Fighter og Complete Arcane sem ég fékk í síðustu viku. Það er t.d. mjög sniðugt að Bladesinger sé epic class. Það eru síðan nokkrir góðir epic classar sem henta monks mjög vel í Complete Fighter.
SoU og HoU viðbæturnar við NWN opna fyrir nokkra epic class sem maður getur tekið ef maður uppfyllir inntökuskilyrðin. 10/8 (Wizard/fighter) minn er í óðaönn að salla niður skrímsli í SoU þessa dagana og gæti alveg hugsað sér að bæta á sig "Arcane Archer" epic klössum í framtíðinni ;)
Ah, ég vissi ekki um þessa takmörkun. Hmmm... ég hef ekki prófað þetta en nú er það bara spurning um að komast að því hvað gildir... Hljómar samt sem spennandi hugmynd, ekki satt?
Ég held að þessi blanda gæti verið mjög hættuleg fyrir þá sem standa andspænis honum ;)
11. apríl 2005, kl. 12:06
LLG, Leikjalotugræðgi?
Ég hef fulla samúð með þér enda búinn að spila í gegnum NWN tvisvar... :| Stórhættulegur leikur og fullkomlega evil jólagjöf ;)