« Leikjafíkn | Heim | Síðasti vetrardagur »
Taka fréttamenn ekki hint?
Í gær kom forsetinn til MA og í tilefni þess var haldinn salur. Þar ávarpaði Bergþóra Benediktsdóttir formaður Hugins samkomuna og ræddi um þá ímynd sem birt er af ungu fólki m.a. í fjölmiðlum. Þegar ungt fólk hittist fyrir utan Alþingi til að mótmæla styttingu náms til stúdentsprófs var allt vel framkvæmt og mótmælin fóru vel fram, en það sem komst í fréttirnar var ungi maðurinn sem kastaði egginu. Þetta var ágætis ávarp hjá henni og maður hefði haldið að viðstaddir fréttamenn hefðu kannski mátt taka þetta aðeins til sín. Það var samt ekki svo.
Forsetinn flutti ávarp og að því loknu var opið fyrir spurningar frá nemendum. Þar var spurt um viðhorf til útlendinga sem flytjast til landsins, hvað forsetinn gerir annað en að fara í heimsóknir og hvort hann ætli að ræða um mannréttindi við Kínaforseta. Komust þessar spurningar í sjónvarpið? Nei, sú spurning sem komst í sjónvarpið var um klæðaburð forsetans! Þarna hefðu fréttamenn getað tekið hint en gerðu það bara ekki.
Ritað 13. apríl 2005 kl. 13:01 um menntamál| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/125
Skoðanir
Ja, ekki viljum við eyðileggja ímynd okkar af unglingum (þá sérstaklega Akureyrskum) sem massa sem hugsi bara um pissur, föt, ofbeldi og kynlíf!!
18. apríl 2005, kl. 13:27
Virðist vera sem fréttamenn hafi ekki tekið hintinu þar sem þetta hér:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1134209
er eina fréttin af Birtingu sem er sjáanleg.