« Kennslulok | Heim | Helgarfrí »
Árangur af stærðfræðikennslu
Undanfarið hefur skjal gengið manna á milli í tölvupósti með samanburði á árangri nemenda úr mismunandi skólum og af mismunandi brautum yfir 5 ára tímabil í Stærðfræðigreiningu 1b við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í skýrslunni kemur skýrt fram að MR, MH og MA undirbúa sína nemendur greinilega betur fyrir þetta nám en aðrir skólar þar sem 69-75% nemenda úr þessum skólum ná prófinu. Þetta hlutfall fellur hratt, allt niður í 26% hjá nemendum úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Þessi skýrsla staðfesti að þær hugmyndir sem maður hafði áður. MA undirbýr nemendur sína vel fyrir háskólanámið, en þó finnast skólar sem virðast gera það betur. Það er greinilega rúm fyrir framfarir. En þetta segir okkur samt það að við erum greinilega ekki að gera eintóma alranga hluti.
Ég hef haldið því fram í nokkurn tíma núna að nám til stúdentsprófs á að hafa þann aðaltilgang að undirbúa nemendur fyrir nám í háskólum. Fólk má tala eins mikið og það vill um „góða almenna menntun“ en ég er á því að ef undirbúningurinn fyrir háskólanámið er sett í fyrirrúm þá kemur þessi „góða almenna menntun“ nokkurnveginn af sjálfum sér.
Þessi sjónarhornsmunur hefur komið fram á mörgum stöðum, en sérstaklega kemur hann í ljós þegar stærðfræðimenntun ber á góma. Við hér við MA höfum sætt mikilli gagnrýni fyrir þær kröfur sem við gerum til nemenda okkar, sumir aðilar horfa mikið á fallprósentur og velta fyrir sér af hverju í ósköpunum fallið sé svona mikið hærra í stærðfræði en í öðrum greinum og af hverju vinnuálagið er svona mikið. Mitt svar er það að við megum ekki lækka kröfurnar vegna þess að sé það gert þá erum við að stefna í voða þeim aðaltilgangi sem vera þessara nemenda í skólanum er. Þau eru að undirbúa sig fyrir háskólanám og ef við lækkum kröfurnar á þau núna þá aukum við líkurnar á því að þau standist ekki kröfurnar sem gerðar verða til þeirra þegar þau fara í háskóla.
Þessi skýrsla var mjög gagnleg að mínu mati, en nú hefur kviknað á þekkingarþorstanum hjá mér. Nú langar mig að sjá sambærilegar skýrslur um fleiri námskeið í mismunandi deildum háskólanna, þau námskeið þar sem fallið er mest, þau sem standa hvað mest í nemendum og hamla hvað mest framgangi þeirra í gegnum námið. Ég tel nefnilega að þau námskeið sýni best hvar skóinn kreppir og sýni þar af leiðandi hver er besti undirbúningurinn fyrir námið.
Ég tel það ekki verjandi að birta skjalið á síðunni minni, það væri brot á höfundarrétti, en ef einhver vill lesa það er hægt að senda inn athugasemd eða senda mér tölvupóst og þá sendi ég skjalið um hæl.
Ritað 26. maí 2005 kl. 08:53 um menntamál| Skoðanir (5) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/142
Skoðanir
Jamm, ég held að það hafi verið lengi vitað að ma undirbyggi sína nemendur vel fyrir háskólanám í stærðfræði (sem og öðrum greinum). Miklar kröfur og mikið vinnuálag er líka skiljanlegt. Mín litla reynsla af stæ kennslu í ma er samt ekki góð, þar sem að eina fólkið sem náði áfanganum í öllum bekknum var fólkið sem keypti sér aukakennslu utan úr bæ allan veturinn (fyrir morðfjár). Ég ætla ekki að kenna skólanum um mitt fall, en ég held að þessi tiltekni hópur hafi hvorki fengið góða kennslu né góðan undirbúning fyrir háskóla. Þegar ég svo tók annan stæ áfangan upp í vma (þurfti ekki hinn) þá lennti ég hjá mun betri kennara. Hef svo seinna heyrt að sá kennari sé einn sá besti sem vma hefur upp á að bjóða sem og að sá sem kenndi mér í ma sé einn sá slakasti. Ég hugsa samt að ég myndi ráðleggja öllum þeim sem hyggðu á háskólanám í stæ-based fögum að fara í ma frekar en aðra skóla
Og mig langar líka að sjá skjalið (lofa að fara með það sem mannsmorð og sver að ég mun ekki blogga um það ;-)
Ég hefði nú einmitt ætlast til þess af þér Harpa að þú bloggaðir um þetta ákveðna skjal. Allt annað væru svik og prettir ;)
26. maí 2005, kl. 11:56
Sæl frænka, ég myndi gjarnan vilja sjá þetta skjal.
Gætirðu sent mér það á netfangið sem ég pikkaði inn hér fyrir ofan? mbk Freyja frænka