« Ný almenn braut við MA | Heim | Sanity check anybody?? »
...bara einn í viðbót...
Þetta var þema kvöldsins í gær, þegar föruneyti drekabanans hélt áfram að reyna að gera heiminn að betri stað... ja, allavegana fámennari stað. Hópurinn stormaði í gegnum hella sem voru hérumbil stútfullir af köngulóm og drap flest það sem í vegi hans var. Ótrúlega oft heyrðist í stjórnandanum: "Fékkstu 34 í attack? Æ, þú þurftir 35." "Hvað segirðu? 25 í skaða? Hann er næstum því dauður."... í næstu umferð... "Hann er dauður, hann átti bara 1 eftir."
Nú hef ég bara nettar áhyggjur af því að í drápsæðinu í gær hafi hópurinn kannski gengið frá þeim sem hefðu getað hjálpað okkur að komast til botns í vandamálinu sem við ætluðum að leysa... Kannski þetta sé ævintýri þar sem það gæti borgað sig að tala við fólk áður en hamrar og galdrar fá að fljúga.
Ritað 1. maí 2005 kl. 15:04 um roleplay| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/130
Skoðanir
Það eru ýmsar aðrar spurningar sem koma upp ;)
3. maí 2005, kl. 14:53
Hehehe, það er spurningin ;)