« apríl 2005 | Main | júní 2005 »
30. maí 2005
Slæmar síður
Illa hannaðar síður fara gríðarlega í taugarnar á mér. Nýlega rakst ég á tvær og var að velta því fyrir mér að blogga um þær en ákvað að bíða með það... Í morgun bættist enn ein við, svo að ég gat ekki orða bundist.
- Norðurorka - Greinilega hefur einhverntíma einhver hönnuður fengið að koma nálægt hönnun þessarar síðu en svo hefur eitthvað möppudýrið tekið ákvörðun um að það væri of dýrt að láta fagmann klára verkið. Bakgrunnurinn er fallegur en allt annað við þessa síðu er slæmt. Rammarnir eru slæmir, textinn neðst á síðunni sem er settur fram í myndum er slæmur (munið: mynd segir meira en 1000 orð, tekur líka 1000 sinnum meira pláss í tölvunni), mest allt innihaldið er sett í Excel skjöl og .pdf skrár og að undanskildum bakgrunninum eru allar myndir á síðunni illa unnar. Hér vantar einhvern sem kann til verka til að kíkja á málið.
- Paparnir - Reyndar ekki alslæm síða, virðist vera fagmannlega unnin, en það fer í taugarnar á mér þegar vefhönnuðir tékka ekki á því hvort síðurnar þeirra líta almennilega út í öðrum vöfrum en Internet Explorer. Ef ég skoða síðuna í Firefox, þá lendir aðal content kassinn ofan á leiðarkerfinu sem var sett neðst á síðuna, þannig að síðan virkar ekki. Smá vinna ætti að geta lagað þetta.
- Barnaland - Barnaland er nýkomið undir mbl.is og fær útlitið og allt frá þeim ágæta miðli. Flest er í lagi, við könnumst við leiðakerfið sem er efst og til vinstri, en það sem er verra er bölvuð auglýsingin sem er lengst til hægri (einhver Tripp-Trapp stóll sem er að valda mígreniköstum hægri-vinstri) og það sem fer mest í taugarnar á mér: eitthvað script sem lætur gluggann hjá mér hoppa til og fara úr Maximized stillingu yfir í Restore stillinguna. Það kemur einhverjum vefhönnuði bara ekkert við hvað ég vil hafa gluggann minn stóran. Ef mér finnst hann of stór hjá mér þá minnka ég hann bara sjálf! Þarna mætti laga síðuna heilmikið ef dregið verður úr þessum flogakasta-valdandi auglýsingum og þessari afskiptasemi af stærð gluggans verði hætt.
Ef þið verðið vör við úrbætur á þessum síðum mæli ég eindregið með því að þið skellið inn athugasemd hjá mér um það :D
Sagði valdis kl. 09:03 | Skoðanir (3) | TrackBack
29. maí 2005
Helgarfrí
Þessi helgi er skrítin. Síðustu helgar hafa allar verið svo uppfullar af verkefnum að ég veit varla hvað ég á við mig að gera þegar kemur svo allt í einu helgi þar sem mér bráðliggur ekki á því að gera neitt. Mér hefur meira að segja leiðst pínu, en það er tilfinning sem kemur ekki oft upp. Yfirleitt finnst mér meira að segja ágætt að hafa ekkert sérstakt að gera, þá get ég sest niður og farið að lesa, horft á sjónvarpið eða djöflast í tölvunni við að drepa ill skrímsli í Neverwinter Nights. Nú er staðan hins vegar þannig að ég sest niður í smá stund, horfi í smástund á imbann, les nokkrar línur í bók, drep nokkur skrímsli og nenni svo ekki meiru.
Mamma reddaði mér reyndar í gær með því að bjóða mér, Eddu og Dodda í mat heima í sveit. Þar fengum við alveg afbragðsgott læri af nýja grillinu sem þau Mamma og Pabbi voru að fá sér. Það og skreppur í pottinn gerðu kvöldið bara nokkuð fínt.
Í dag hef ég afrekað það helst að baka helling af heilhveitihnútum fyrir kennarana á morgun. Þessi ágæta hefð að koma með bakkelsi þegar maður leggur fyrir próf er fín, en svo þarf maður víst að koma með eitthvað sjálfur. Ég held annars að hnútarnir ættu að duga ofan í liðið.
Sagði valdis kl. 17:50 | Skoðanir (3) | TrackBack
26. maí 2005
Árangur af stærðfræðikennslu
Undanfarið hefur skjal gengið manna á milli í tölvupósti með samanburði á árangri nemenda úr mismunandi skólum og af mismunandi brautum yfir 5 ára tímabil í Stærðfræðigreiningu 1b við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í skýrslunni kemur skýrt fram að MR, MH og MA undirbúa sína nemendur greinilega betur fyrir þetta nám en aðrir skólar þar sem 69-75% nemenda úr þessum skólum ná prófinu. Þetta hlutfall fellur hratt, allt niður í 26% hjá nemendum úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Þessi skýrsla staðfesti að þær hugmyndir sem maður hafði áður. MA undirbýr nemendur sína vel fyrir háskólanámið, en þó finnast skólar sem virðast gera það betur. Það er greinilega rúm fyrir framfarir. En þetta segir okkur samt það að við erum greinilega ekki að gera eintóma alranga hluti.
Ég hef haldið því fram í nokkurn tíma núna að nám til stúdentsprófs á að hafa þann aðaltilgang að undirbúa nemendur fyrir nám í háskólum. Fólk má tala eins mikið og það vill um „góða almenna menntun“ en ég er á því að ef undirbúningurinn fyrir háskólanámið er sett í fyrirrúm þá kemur þessi „góða almenna menntun“ nokkurnveginn af sjálfum sér.
Þessi sjónarhornsmunur hefur komið fram á mörgum stöðum, en sérstaklega kemur hann í ljós þegar stærðfræðimenntun ber á góma. Við hér við MA höfum sætt mikilli gagnrýni fyrir þær kröfur sem við gerum til nemenda okkar, sumir aðilar horfa mikið á fallprósentur og velta fyrir sér af hverju í ósköpunum fallið sé svona mikið hærra í stærðfræði en í öðrum greinum og af hverju vinnuálagið er svona mikið. Mitt svar er það að við megum ekki lækka kröfurnar vegna þess að sé það gert þá erum við að stefna í voða þeim aðaltilgangi sem vera þessara nemenda í skólanum er. Þau eru að undirbúa sig fyrir háskólanám og ef við lækkum kröfurnar á þau núna þá aukum við líkurnar á því að þau standist ekki kröfurnar sem gerðar verða til þeirra þegar þau fara í háskóla.
Þessi skýrsla var mjög gagnleg að mínu mati, en nú hefur kviknað á þekkingarþorstanum hjá mér. Nú langar mig að sjá sambærilegar skýrslur um fleiri námskeið í mismunandi deildum háskólanna, þau námskeið þar sem fallið er mest, þau sem standa hvað mest í nemendum og hamla hvað mest framgangi þeirra í gegnum námið. Ég tel nefnilega að þau námskeið sýni best hvar skóinn kreppir og sýni þar af leiðandi hver er besti undirbúningurinn fyrir námið.
Ég tel það ekki verjandi að birta skjalið á síðunni minni, það væri brot á höfundarrétti, en ef einhver vill lesa það er hægt að senda inn athugasemd eða senda mér tölvupóst og þá sendi ég skjalið um hæl.
Sagði valdis kl. 08:53 | Skoðanir (5) | TrackBack
24. maí 2005
Kennslulok
Nú er kennslu samkvæmt stundarskrá lokið. Þá tekur við annað reglulegt stúss, eins og að ganga frá prófum, sitja yfir prófum og að ganga frá einkunnum. Það er samt ágætt að vera farin að sjá fyrir endann á þessu.
Sagði valdis kl. 12:49 | Skoðanir (1) | TrackBack
23. maí 2005
Helgarskýrslan
Mín skellti sér suður um helgina til að reyna að hressa sig upp. Síðasta vika var nefnilega búin að vera massív, þó hún væri stutt. Hver vinnudagur mjög langur og margt að gera. Því var ákveðið að drífa sig suður og skella sér á Júróvisjón partý. Ferðirnar suður og aftur norður gengu báðar mjög vel, töluvert rok en annars ágætt. Partýið var mjög skemmtilegt þó að Noregur næði ekki að sigra í þetta skiptið.
Á sunnudag ákváðum við Tryggvi svo að kíkja í þrjúbíó á Revenge of the Sith. Mjög góð mynd, sérstaklega gott hvernig tekst að binda lausa enda án þess að öll myndin fari í það. Ég hafði áhyggjur af því að myndin yrði öll svona samtengingar-mynd til að tengja saman myndir II og IV en það kom samt vel út. Helsti gallinn við bíóferðina var þáttur sem framleiðendur höfðu engin áhrif á, nefnilega áhorfendurnir. Meðalaldur í salnum slefaði kannski upp í 12 ár, fólk var á stanslausu rápi, gat ekki þagað og bara vesen á því. Mér finnst alltaf skemmtilegast í bíó þegar maður hefur salinn svo gott sem út af fyrir sig, en ef það gengur ekki, þá vil ég helst að aðrir áhorfendur hagi sér þannig að ég geti gleymt því að þeir séu þarna. Sem sagt: ekki tala, ekki senda SMS (glampinn pirrar mig), ekki sparka í bakið á sætinu mínu, ekki byrja að flissa þegar hádrama-senan er í gangi (sér Reykvískt dæmi úr Romeo+Juliet) og ekki öskra þvert yfir þrjár raðir til að láta kasta í þig munntóbaksdós (sér Húsvískt dæmi úr Red Dragon). Kannski er ég voðalega sérvitur.
Sagði valdis kl. 15:40 | Skoðanir (1) | TrackBack
19. maí 2005
Fyrsti í Júróvisjón
Í kvöld halda Íslendingar heilagan fyrsta í Júróvisjón. Áfram Selma! Ég vona bara að ég nái að horfa á þetta, því að ég hef stóóóran stafla af prófum og verkefnum til að fara yfir. Nú hef ég próf frá fimm bekkjum og verkefni frá tveimur til að fara yfir, og það þarf helst allt að gerast í dag. Sem betur fer er kennslan búin í dag. Nú vantar bara að ég nenni að byrja... ja, það gerist ekki á meðan ég sit hérna og blogga, so let's get to it!
Sagði valdis kl. 12:57 | Skoðanir (0) | TrackBack
16. maí 2005
The Hitchhiker's Guide to the Galaxy
Nýja Bíó var ekki alveg að standa sig með sýningar á Gædinum, því að á föstudagskvöldið var búið að auglýsa sýningu kl. 22 en það reyndist vera vitleysa, og svo þegar við fórum á sunnudag á myndina þá var hljóðkerfið on the fritz. Hins vegar stóð myndin alveg fyrir sínu, bæði með söguþræði sem var töluvert heilsteyptari en sá sem er í bókinni, og svo laumaði hún á ýmsu góðu. Alan Rickman stóð sig vel sem rödd Marvin, það var gaman að sjá persónur úr gömlu sjónvarpsþáttunum birtast í myndinni og svo fannst mér hlutverk Trillian hafa fengið skemmtilega breytingu frá því sem var í bókunum. Ég er frekar ánægð með myndina og hlakka til að sjá framhaldið.
Sagði valdis kl. 17:05 | Skoðanir (6) | TrackBack
13. maí 2005
Löng helgi
Það er komin helgi, löng helgi eftir fyrstu heilu vikuna í skuggalega langan tíma. Ég ætla heim að stússast og í kvöld er svo stefnan á Gædinn! Gagnrýni á þessa mynd hefur verið svo misjöfn að ég hreinlega verð að sjá hana sjálf!
Sagði valdis kl. 14:58 | Skoðanir (1) | TrackBack
11. maí 2005
Boltann burt!!
Ég var svo glöð þegar ég frétti að enski boltinn er að fara frá SkjáEinum. Áfram amrískt afþreyingarefni og út með boltann! Loksins getur maður treyst á að geta fengið að horfa á America's Next Top Model, Malcolm in the Middle og annað gæða efni ótruflað og á réttum tíma! Gleði, gleði...
Sagði valdis kl. 18:21 | Skoðanir (4) | TrackBack
8. maí 2005
Skemmtileg þraut
Dagný benti á þennan skemmtilega leik: Petals around the rose. Fattið þið hvað kerfið er? Ef þið náið sex sinnum rétt í röð er áætlað að þið hafið náð því.
Sagði valdis kl. 18:00 | Skoðanir (2) | TrackBack
Dugnaðarkast
Ég tók þvílíka dugnaðarkastið í gær. Ég keypti allskonar hreinsidrasl niðri í Nettó og fór síðan á fullt heima! Sófarnir voru lagðir á bakið, tapparnir skrapaðir undan og nýjir settir undir til að hægt væri að aka þeim í hinn endann á stofunni. Stofuborðið, sjónvarpsskápurinn og kommóðan fór sömu leið og Eik þurfi að leggjast í sófann á meðan ég athafnaði mig. Gólfið í stofunni var síðan sópað, skúrað og bónað. Já, það var rétt lesið, ég sagði BÓNAÐ! Tvær umferðir gerðu stofugólfið mitt alveg skínandi fallegt. Þá var öllu draslinu rúttað til baka aftur, og restin af parketinu tekin fyrir. Tölvuborðið fékk reyndar að vera áfram þar sem það er, en allt sem var á því var tekið niður, gengið frá öllu sem átti ekki að vera þarna og svo var öllu stillt aftur upp. Ég tók meira að segja upp á því að nota húsráð frá Heiðari Snyrti í Allt í drasli, sem var að vefja snúrur saman og troða í gegnum klósettrúllur. Virkar vel, nú á ég bara eftir að fixa þetta þannig að ég geti hengt snúrurnar uppundir tölvuborðið, svo hægt sé að þrífa á bakvið tölvuna í framtíðinni. Nú þegar tölvuborðið var orðið fínt og flott þá kláraði ég að bóna... en þá var nennririnn búinn. Mín fékk sér að borða og fór í bað og skildi eldhúsið eftir eins og miðborg Bagdad. Svefnherbergið fékk minimal yfirhalningu og baðherbergið ekki meira en svo að ég setti stíflueyði í vaskinn og lét þar við sitja.
En hey, það er voða, voða fínt í stofunni hjá mér :D
Sagði valdis kl. 14:34 | Skoðanir (1) | TrackBack
4. maí 2005
Það er eitthvað svo rangt...
... að sitja í M5 við borð sem er raðað í hring... I feel dirty...
Sagði valdis kl. 15:29 | Skoðanir (0) | TrackBack
3. maí 2005
Sanity check anybody??
Þegar maður spilar hlutverkaspil fær maður oft að taka tékk hjá stjórnanda, t.d. wisdom check. Í gær hefði ég viljað taka sanity check því að ég fékk þá undarlegu hugmynd að fara í Bónus eftir vinnu. Eftir á að hyggja hefði ég mátt hugsa mig betur um. Bónus, eftir klukkan fimm, fyrsta mánudag í mánuði, sem þar að auki var barnabótadagurinn, er ekki æskilegur staður að vera á. Vá! Ótrúlega margir að mæta á staðinn með hálfs til eins árs gömlu börnin sín, en þeim fannst hreint ekkert gaman að vera á staðnum. Raðirnar náðu fram að frystikistunum. Sem betur fór valdi ég mér röð sem fór fram hjá bökunarvörum... ég hefði sennilega komið út með fulla poka af nammi ef ég hefði verið í næstu röð við hliðina...
Sagði valdis kl. 13:04 | Skoðanir (5) | TrackBack
1. maí 2005
...bara einn í viðbót...
Þetta var þema kvöldsins í gær, þegar föruneyti drekabanans hélt áfram að reyna að gera heiminn að betri stað... ja, allavegana fámennari stað. Hópurinn stormaði í gegnum hella sem voru hérumbil stútfullir af köngulóm og drap flest það sem í vegi hans var. Ótrúlega oft heyrðist í stjórnandanum: "Fékkstu 34 í attack? Æ, þú þurftir 35." "Hvað segirðu? 25 í skaða? Hann er næstum því dauður."... í næstu umferð... "Hann er dauður, hann átti bara 1 eftir."
Nú hef ég bara nettar áhyggjur af því að í drápsæðinu í gær hafi hópurinn kannski gengið frá þeim sem hefðu getað hjálpað okkur að komast til botns í vandamálinu sem við ætluðum að leysa... Kannski þetta sé ævintýri þar sem það gæti borgað sig að tala við fólk áður en hamrar og galdrar fá að fljúga.
Sagði valdis kl. 15:04 | Skoðanir (2) | TrackBack