« Löng helgi | Heim | Fyrsti í Júróvisjón »

The Hitchhiker's Guide to the Galaxy

Nýja Bíó var ekki alveg að standa sig með sýningar á Gædinum, því að á föstudagskvöldið var búið að auglýsa sýningu kl. 22 en það reyndist vera vitleysa, og svo þegar við fórum á sunnudag á myndina þá var hljóðkerfið on the fritz. Hins vegar stóð myndin alveg fyrir sínu, bæði með söguþræði sem var töluvert heilsteyptari en sá sem er í bókinni, og svo laumaði hún á ýmsu góðu. Alan Rickman stóð sig vel sem rödd Marvin, það var gaman að sjá persónur úr gömlu sjónvarpsþáttunum birtast í myndinni og svo fannst mér hlutverk Trillian hafa fengið skemmtilega breytingu frá því sem var í bókunum. Ég er frekar ánægð með myndina og hlakka til að sjá framhaldið.

Ritað 16. maí 2005 kl. 17:05 um bíó| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)

Tilvísanir

Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/137

Skoðanir

1.
Edda Rós
17. maí 2005, kl. 13:18

Magnað hvað fólk getur haft misjafnar skoðanir.

2.
Tryggvi R. Jónsson
17. maí 2005, kl. 14:18

Sem er gott ;)

3.
Elva
17. maí 2005, kl. 19:39

Mér hefði nú liðið miklu betur ef allir hefðu verið sammála Eddu, verandi ein af þeim sem hefur ekki séð þessa mynd. Ég hefði getað sagt með sjálfri mér að þetta væri hvort sem er leiðinleg mynd og ég væri ekkert að missa af neinu, en nú...

4.
Edda Rós
18. maí 2005, kl. 17:14

Hún er leiðinleg og þú ert ekki að missa af neinu, ég mæli hins vegar með því að þú komir með mér að sjá myndina um Herbie ofurbjölluna! Það er ég viss um að er klassamynd ;)
Annars er þessi gædinn svona mynd sem fólki finnst vera annað hvort góð eða vond, það virðist óháð því hvort að fólk er búið að lesa bókina eða ekki, óháð því hvort því fannst bókin góð eða ekki. Það er bara eitthvað í myndinni sem nær til sumra en ekki allra. Kannski finnst þér hún góð, mér finnst td Star wars myndirnar leiðinlegar (the making of star wars eru yfirleitt mun áhugaverðari myndir að mínu mati) en bæði þér (Elvu) og Valdísi finnst þær góðar þannig að hver veit...
Gædinn má eiga það að það ætti enginn að kveljast við að sitja í bíósalnum einsog td á passion of the christ...

5.
Valdís
18. maí 2005, kl. 17:50

Hmmm... Ég held ég geti boðið þér ásættanlega lausn. Mér finnst nefnilega ofur líklegt að ég muni koma til með að kaupa þessa mynd á DVD, þannig að þú getur alveg fengið hana lánaða hjá mér þegar þar að kemur, án þess að þurfa að leggja út fyrir kostnaði við bíóferð... hins vegar þarftu þá að bíða þangað til hún kemur út á slíku formi ;)

Já, og þið Edda getið alveg farið án mín á ofurbjölluna Herbie. Ég man nefnilega eftir gömlu myndunum og mér finnst Lindsey Lohan ekki líkleg til að bæta formúla nóg til að ég nenni.

6.
Tryggvi R. Jónsson
19. maí 2005, kl. 09:16

Ég get hins vegar glatt allar brjáluðu vifturnar (all you crazy fans out there...), sem hér af eru margar, að ég var að koma höndum yfir soundtrackið úr þessari umtöluðu mynd og "So long and thanks for all the fish" er bara alveg jafn gott svona eitt og sér eins og það var í myndinni ;)