« JIBBBÍÍÍ!!! | Heim | Tönnin mín! Buhuuhuuu! »
Hrikalegt spil
Magnus Cro hélt áfram för sinni um Szith Morcane ásamt Föruneyti Drekabanans í gær. Framan af gekk ágætlega þó að nokkrir bardagar hafi gengið býsna nærri meðlimum Föruneytisins. Við hittum fyrir nokkrar vampýrur, skinnlausa undead drow og önnur skemmtileg kvikindi. Magnus féll fyrir töfrum vampýru og tók til við að ráðast á hópfélaga sína og rankaði ekki við sér fyrr en vampýran var drepin. Þó lá við að færi illa þegar við hittum fyrir eina öfluga vampýru sem heillaði kenderinn Peewee upp úr skónum og sagði honum að drepa Magnus, sem hann og gerði eftir bestu getu. Sem betur fór virkar trésverðið hans Peewee ekki almennilega nema á vonda einstaklinga þannig að Magnus slapp með skrekkinn, nær dauða en lífi þó.
Ritað 18. júní 2005 kl. 21:44 um roleplay| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)
Tilvísanir
Tilvísunarslóð fyrir þessa færslu:
http://www.valdisbjork.com/MT/mt-tb.cgi/251
Skoðanir
Það hefði nú verið hægt að berja niður einn kender og eina vampýrutjellingu ;)
Frábær síða Valdýs...gaman að lesa um D og D
Hmmm... Takk fyrir hrósið Nemi, en ég heiti samt Valdís, með í-i og vil ekki að fólk sé að kommenta hérna nafnlaust... Hver er þetta með leyfi?
sorry ætlaði að skrifa nemi-ólafur en gleymdi því...sorry líka með stafsetningarvilluna:S...(vona að ég fái ekki 0 í stærðfræði fyrir þetta:P:P:P
Hehe :D Nei, ætli það... Aldrei lægra en 1 ef þú manst að skrifa nafnið þitt ;)
19. júní 2005, kl. 19:23
Já, þetta var alveg hroðalegt!! Grey PeeWee (og Doddi). Ég hélt í alvörunni að dagar föruneytisins voru taldir í smá tíma!!!