« maí 2005 | Main | júlí 2005 »
29. júní 2005
Batman Begins (2005)
Við sáum Batman Begins áðan. Ágætis afþreying, kannski engin glansandi snilld en þó alveg vel áhorfandi. Það sem mér fannst einna best við þessa mynd er að ólíkt öllum hinum Batman myndunum þá leiddist mér aldrei yfir þessari. Hún var aldrei langdregin eða leiðinleg eins og hinar. Ef Katie Holmes hefði verið skipt út fyrir einhverja aðra, hefði hún jafnvel orðið ennþá betri.
Sagði valdis kl. 21:30 | Skoðanir (0) | TrackBack
27. júní 2005
JPG yfir í ASCII kóða
Skemmtileg síða sem ég rakst á í gegnum Userfriendly, þarna er hægt að hlaða upp JPG myndum, þær þurfa reyndar að vera pínu litlar, bara 60*50 pixelar, en síðan breytir myndinni sem sagt í ASCII kóða. Tók andlitsmyndina mína og setti hana inn í þetta. Frekar flott. Skoðið: Andlit
Sagði valdis kl. 17:50 | Skoðanir (2) | TrackBack
Draumfarir
Mig dreymdi undarlegan draum í nótt. Það merkilegasta sem kom þar fyrir var að ég hitti barnið þeirra Eddu og Dodda. Stórskemmtileg stelpa (?) sem hét Alice eftir Lísu í Skógarhlíð. Voða voða sæt en reyndar frekar misþroska því að mér fannst endilega að hún ætti að vera þriggja mánaða en samt kunni hún alveg að bæði ganga og tala. Kannski erfinginn þeirra Eddu og Dodda verði snöggur að þessu, ég veit að Edda var það allavegana.
Annars veit ég ekki um forspárgildi þessa draums því að fyrir utan að hitta hana Alice þá þvældist ég um einhverja undarlega verslunarmiðstöð að leita mér að bláu naglalakki og lenti líka í veseni með að komast frá Hrísateig. Það var nefnilega búið að beef-a ristahliðið upp þannig að það var gaddavír út um allt og rafmagn í því líka, en það var ekki búið að stilla okkur Rögnu inn á "kerfið" þannig að við lentum í meiriháttar veseni við að komast út.
Það var samt gaman að hitta hana Alice og ég hlakka til að hitta hana aftur, þó það komi kannski í ljós að hún sé bara ekki stelpa og heiti eitthvað allt annað.
Sagði valdis kl. 11:41 | Skoðanir (1) | TrackBack
26. júní 2005
Suðurferð
Við Tryggvi renndum suður áðan. Þar sem ég er komin í sumarfrí þá ætla ég að eyða smá tíma í Reykjavík að dúlla mér. Ætli maður leiki ekki bara heimavinnandi húsmóður hjá Tryggva, þar sem hann er ekki með jafn ríflegt sumarfrí eins og ég. Gaman líka að geta eytt aðeins meiri tíma saman.
Sagði valdis kl. 22:59 | Skoðanir (0) | TrackBack
22. júní 2005
Þráðlausar pælingar
Ég er risaeðla. Ég nota gamla HP Brio borðvél og hringi mig inn á netið með módemi, með tilheyrandi skruðningum og látum. Í gamla daga vissi maður að maður ætti erfitt með að komast inn á netið á ákveðnum tímum, þegar IRC liðið var mætt á svæðið og blokkeraði alla umferð. Síðastliðin ár hafa allir fengið sér þráðlaust og maður hefði haldið að álagið á innhringisambandið hefði aðeins lagast. En nei. Það tekur mig 3-6 tilraunir í hvert skipti að hringja mig inn á netið og hraðinn er skiljanlega lélegur þegar maður er loksins kominn inn. Þar af leiðandi er ég loksins farin að hugsa með mér að ég ætti að fá mér þráðlaust samband í íbúðina... gæti notað lappann sem ég er með í vinnunni... Er að pæla í því að sameina fjarskiptakostnað á einn reikning og fá mér þráðlaust hjá Símanum og færa GSM þangað líka...
Sagði valdis kl. 20:16 | Skoðanir (2) | TrackBack
Mr & Mrs Smith (2005)
Systraferð í bíó í gær. Fórum á Mr. & Mrs Smith. Það er óhætt að mæla með þessari mynd. Plottið var stórskemmtilegt, mikið af húmor og action.
Sagði valdis kl. 16:07 | Skoðanir (0) | TrackBack
20. júní 2005
Tönnin mín! Buhuuhuuu!
... eða öllu heldur "Kjálkinn minn! Buhuuhuuu!" Hinn endajaxlinn minn í efri góm er á vælandi siglingu niður þessa dagana og þar af leiðandi er ég frekar mikið í hamstralookinu núna. Þessi vandræðatönn nuddast við neðri kjálkann og liðinn og veldur bólgu, sem gerir allt annað en að laga vandamálið.
Ég var búin að hringja í tannsa í síðustu viku og fékk tíma næsta mánudag. Spurning um að maður hringi aftur og beri sig illa og biðji um að það verði hugsað til manns ef eitthvað losnar...? Annars hef ég fengið svona áður, auk þess sem ég hef áður látið taka endajaxl, og ég held að það sé betra ef bólgan hjaðnar aðeins áður en tannsi fer að hamast á munninum á mér.
Sagði valdis kl. 10:14 | Skoðanir (4) | TrackBack
18. júní 2005
Hrikalegt spil
Magnus Cro hélt áfram för sinni um Szith Morcane ásamt Föruneyti Drekabanans í gær. Framan af gekk ágætlega þó að nokkrir bardagar hafi gengið býsna nærri meðlimum Föruneytisins. Við hittum fyrir nokkrar vampýrur, skinnlausa undead drow og önnur skemmtileg kvikindi. Magnus féll fyrir töfrum vampýru og tók til við að ráðast á hópfélaga sína og rankaði ekki við sér fyrr en vampýran var drepin. Þó lá við að færi illa þegar við hittum fyrir eina öfluga vampýru sem heillaði kenderinn Peewee upp úr skónum og sagði honum að drepa Magnus, sem hann og gerði eftir bestu getu. Sem betur fór virkar trésverðið hans Peewee ekki almennilega nema á vonda einstaklinga þannig að Magnus slapp með skrekkinn, nær dauða en lífi þó.
Sagði valdis kl. 21:44 | Skoðanir (6) | TrackBack
15. júní 2005
JIBBBÍÍÍ!!!
Ég er búin að fara yfir prófin!!! Ég er svo glöð :D
Sagði valdis kl. 13:57 | Skoðanir (3) | TrackBack
13. júní 2005
Spilahelgi
Helgin sem leið var góð með mjög svo nauðsynlegri hvíld. Á föstudagskvöld var þessi fíni kjúlli hjá tengdó með stórundarlegri hnetusmjörsósu. Spilið á laugardagskvöld var ágætt með Marstertu (stærri mynd) og alls kyns hetjuskap. Þar var m.a. einn blackguard sem var ýtt út í horn og svo sallaður niður af kendernum, reyndar nokkrum dögum seinna.
Nú taka við endurtektarpróf, yfirferð og leiðindi. Það styttist samt í frí...
Sagði valdis kl. 17:46 | Skoðanir (0) | TrackBack
9. júní 2005
Annir í annarlok
Jæja, prófin eru búin, yfirferð búin, allt í gúddí. Nú á mín bara eftir að leggja fyrir eitt sjúkrapróf og eitt aukapróf, fara yfir þau og ganga almennt séð frá önninni. Best að ganga frá pappírum og svoleiðis.
Sagði valdis kl. 13:09 | Skoðanir (0) | TrackBack
8. júní 2005
Mistúlkun á tölfræði
Rakst á frétt áðan sem gerði mig frekar pirraða: Segja að stórefla þurfi menntun verslunarfólks
Þetta er svo öfugsnúið. Ástæðan fyrir því að menntunarstig verslunarfólks er svo lágt, er sú að mjög hátt hlutfall þessara starfsmanna eru framhaldsskólanemar. Það liggur í augum uppi að þeir sem eru í framhaldsskóla hafa ekki lokið framhaldsskólamenntun. Leiðin til að auka hlutfall þeirra sem hafa framhaldsskólamenntun er að ráða færri framhaldsskólanema til starfa og ráða frekar aðeins eldra fólk sem hefur lokið framhaldsnámi sínu. Það þarf ekki að auka framboð starfsnáms fyrir þá sem þegar eru í námi.
Þetta er dæmi um að tekin sé einhver tala og tekin heljarstökk í ályktunum út frá henni. Alveg dæmigert um fréttamennskuna hjá mbl.is.
Sagði valdis kl. 13:23 | Skoðanir (8) | TrackBack
6. júní 2005
Letihelgi
Ég tók eina góða letihelgi núna um helgina. Við systurnar fórum ásamt Krissu, Dodda og Magna Steini á Pizza67 og fengum gott að borða þar. Elva og Magni gistu svo hjá mér um nóttina en Magni var áfram hjá mér á meðan Elva og Ragna fóru austur fyrir. Við Magni djömmuðum frameftir degi, kíktum á leiktækin við blokkina og horfðum á DVD. Ég gerðist svo fræg að sjá Bionicle 2: Legends of Metru-Nui, sem er ágætis mynd. Mér fannst persónan Nokama sérstaklega svöl, blá stelpu Toa sem var telepath.
Eftir að Magni Steinn fór með Afa sínum og Ömmu í útilegu í Vaglaskógi hélt ég bara áfram að liggja í leti og horfði á Catch Me If You Can, Star Trek: Generations, og nokkra þætti af Quantum Leap 3.
Ég er samt stoltust af því að hafa bakað eina Mars tertu fyrir kennarana sem sitja yfir hjá mér á eftir. Hún er ótrúlega girnileg, ég vildi helst að ég ætti myndavél svo ég gæti smellt nokkrum myndum af henni inn á vefinn... oh ég verð að smakka hana á eftir...
Sagði valdis kl. 09:42 | Skoðanir (4) | TrackBack
3. júní 2005
Helgi!!
Eftir aðeins smá stund í viðbót þá verð ég komin í helgarfrí!! Þetta verður frábært.
Vefurinn minn er líka kominn á nýjan stað, nýja Búkollu. Held að honum líði bara vel þar.
Sagði valdis kl. 14:11 | Skoðanir (0) | TrackBack
2. júní 2005
Vertíð
Nú er hörku vertíð í gangi. Síðustu vikuna hafa nemendur setið sveittir við próflestur og próftöku, kennarar setið sveittir við prófsamningu og yfirferð og flestir aðrir líka setið sveittir bara vegna þess að það er svo skammarlega gott veður. Sem betur fer hefur nú kólnað aðeins síðustu daga, þannig að lífið er þó bærilegt.
Sagði valdis kl. 16:26 | Skoðanir (1) | TrackBack