Allt of mikið að gerast
Ég næ ekki að fylgjast með öllu því sem er að gerast þessa dagana. Menn hrynja niður í krabbameini hægri, vinstri, óeirðir í miðbænum í Reykjavík, afsagnir og allt á fullu. Ég hef varla gert mér neina skoðun á því t.d. hvort ég vilji fá nýja strjórn eða ekki. Held samt að það væri til bóta að skipta um fólk, hvort sem það kemur úr sömu flokkum og eru nú við völd eða öðrum.
Ég hef samt nokkrar áhyggjur af því að þegar kosið verði í vor, þá taki ekkert betra við. Við, óbreyttir kjósendur, erum nauðbeygðir til að kjósa sömu óhæfu, spilltu flokkana og áður, sama gallaða listafyrirkomulagið verður áfram það eina sem er í boði, og íslenska þjóðin mun eflaust sýna sömu skammsýnina eins og venjulega og kjósa bara nákvæmlega það sem hún er vön að gera. Við erum þrátt fyrir allt skepnur vanans.
Mér er nefnilega meinilla við kosningakerfið okkar eins og það er í dag. Mér er illa við það að ég verði að setja atkvæði mitt við lista og að ef ég vil gera breytingar á honum þá verður meirihluti kjósenda þessa lista að gera nákvæmlega sömu breytingu og ég. Dæmi: á framboðslista er maður í efsta sæti. Ég, ásamt 30% kjósenda þessa lista strikum hann út. 30% til viðbótar endurraðar listanum svo að hann lendi í neðsta sæti. Semsagt, 60% kjósenda breyta listanum þannig að þessi maður ætti ekki að komast inn á þing. En þá ræður minnihlutinn, vegna þess að þessi 60% gerðu ekki nákvæmlega sömu breytinguna.
Annað sem mér er illa við, það er flokkahoppið eftir að menn hafa verið kosnir inn á þing. Ef einhver er kosinn inn á þing í nafni þingflokksins síns og ákveður síðan að skipta um flokk þá finnst mér fáránlegt að hann fái að halda sínu þingsæti. Kjósendurnir fengu nefnilega ekki að kjósa einstaklinginn, heldur þurftu þeir að kjósa lista. Því ætti listinn að halda þingsætinu, en ekki einstaklingurinn, ef það ætti að gæta samræmis í þessu kerfi.
Ég hef tillögu að breytingu á þessu kerfi. Leyfum þjóðinni að kjósa einstaklinga í staðinn fyrir að kjósa lista. Þessir einstaklingar mega mín vegna halda áfram að bjóða sig fram í nafni flokkanna, en ég vil geta krossað við þá einstaklinga sem ég vil fá inn á þing, jafnvel þó þeir séu ekki einusinni í sama flokki.
Fyrirkomulagið getur verið svona:
- Kjósendur fá áfram sinn kjörseðil. Á honum eru nöfn allra frambjóðenda í viðkomandi kjördæmi.
- Hver kjósandi fær jafn marga krossa og eru þingmenn í því kjördæmi. Þannig fengi ég að setja allt að 10 krossa, þar sem það eru 10 þingmenn í norðausturkjördæmi.
- Kjósanda er frjálst að setja krossana sína við nöfn frambjóðenda úr mörgum mismunandi flokkum. Þannig mætti ég setja 4 krossa við samfylkingarmenn, 5 við vinstri græna og 1 við framsóknarmann. Of margir krossar gera seðilinn ógildan.
- Kjörseðlar eru lesnir og taldir með rafrænum hætti. Þó finnst mér eðlilegt að halda pappírskjörseðlunum, svo að hægt sé að telja handvirkt ef tæknin bregst. Mér sýnist meira að segja að þetta ætti að vera auðvelt, því að nú er búið að leggja af samræmd próf í 10. bekk að vori, svo að yfirferðarvélarnar hjá Námsmatsstofnun liggja bara og rykfalla á vorin.
- Þeir frambjóðendur sem fá flest atkvæði vinna.
- Jöfnunarþingsæti ættu að verða óþörf með þessu fyrirkomulagi.
Væru fleiri til í þetta?
January 25th, 2009 at 2:48 pm
Ég væri alveg til í þetta.
Það er víst þannig að hver þingmaður á að vera á þingi sem einstaklingur og kjósa þar eftir samvisku sinni (eða hvernig sem það er orðað). Þetta virðist gleymast oftast nær nema þegar þeir fara í fýlu og skipta um flokk. Þá er þetta dregið fram til að réttlæta áframhaldandi þingsetu. Þannig að kjósa um einstaklinga er miklu gáfulegra en þetta fyrirkomulag sem við höfum núna.
January 27th, 2009 at 10:10 am
Þetta er eins og talað út úr mínu hjarta og ekki nokkur spurning um að þetta væri betra kerfi.
January 29th, 2009 at 8:53 am
Þetta er nákvæmlega það sem þarf, er alveg sammála þér.
Kveðja
Valdísi í stjórn!
Þórdís