Alvöru ólétt
Já, ég hef fundið það undanfarna viku að nú er ég alveg hætt að vera ófrísk og er orðin alvöru ólétt. Þ.e.a.s. ég er löngu hætt að gubba og vesenast svoleiðis, þó að ég fái einstaka sinnum brjóstsviða. Hins vegar hefur undanfarin vinnuvika sýnt mér að tveggja vikna jólafrí getur breytt töluverðu. Í lok dags á mánudag og þriðjudag fann ég að bumban var farin að síga töluvert í og það var orðið mjög erfitt að standa við töfluna. Nú er ég mjög fegin að þurfa ekki að kenna á næstu önn, heldur fæ ég í staðinn að vinna ýmis önnur verkefni, eins og t.d. að vinna tölfræðilega úrvinnslu fyrir sjálfsmatsnefndina.
January 12th, 2009 at 11:17 pm
Iss besti parturinn er eftir… Svona eða þannig, njóttu þess bara á meðan kúlan er ennþá þó þetta lítil
Annars segir mamma að þú sért bara orðin nokkuð myndarleg (ég skal bítta á mynd af Hrafnkel með kattarkvikindinu og bumbumynd af þér…)
January 13th, 2009 at 8:01 am
Ég hugsa nú að ég verði orðin býsna glæsileg áður en yfir lýkur. Ég næ ennþá að labba án þess að vagga neitt voðalega, en það gæti nú alveg komið fljótlega. Ég skal fá Tryggva til að smella af bumbumynd á eftir
January 13th, 2009 at 4:07 pm
Já, vertu dugleg að taka bumbumyndir. Ég sé ennþá eftir því að hafa ekki drifið Eddu í að taka mynd af mér daginn áður en Magni kom.
Og njóttu bumbunnar núna því þetta er besti hlutinn (fannst mér), ógleðin og það allt búið en ennþá hægt að hreyfa sig án meiriháttar aðgerða