Bílaraunir

Bílarnir okkar Tryggva eru ekki beinlínis að þýðast okkur þessa dagana. Accidentinn minn er nú fyrir sunnan svo Tryggvi geti skutlast á honum þegar hann er að vinna þar. Hann tók upp á því í síðustu viku að hristast og skjálfa og stefna í allt aðrar áttir en ökumaður hafði hugsað sér. Tryggvi ætlaði að koma honum út í Hafnarfjörð til bifvélavirkjans sem sá hvað mest um Krúserinn á sínum tíma. Komst í Garðabæ. Enn er ekki ljóst nákvæmlega hvað var að, við bíðum úrskurðar bifvélavirkjans. Bara kaldhæðnislegt að í fyrsta skipti í langan tíma sem þessi bíll kemst í gegnum skoðun í fyrstu atrennu, þá bilar hann almennilega um mánuði seinna.
Bimminn er ekki jafn slæmur, en hann mótmælir harðlega að hafa verið fluttur á svona kaldan stað eins og Akureyri er. Ef aftursætisdyrnar vinstra megin eru opnaðar, þá er ekki hægt að loka þeim almennilega fyrr en bíllinn er orðinn heitur, lásinn einfaldlega grípur ekki. Þar að auki er læsingartakkinn á lyklinum/fjarstýringunni orðinn svo slitinn að hann sendir ekki alltaf merki. Ég hélt að puttarnir á mér myndu detta af í morgun við að hamast á þessum blessaða takka.
Spurning um að nýta sér meira ókeypis strætó á Akureyri?

One Response to “Bílaraunir”

  1. Tryggvi R. Jónsson Says:

    Fnusss, öxull og spyrna boginn og ónýt, gæti útskýrt það af hverju dekkið vinstramegin að framan hefur alltaf verið aftar í hjólaskálinni en hinu megin. Þetta s.s. gaf upp öndina endanlega núna en er komið í og ég get sótt blessaðan skrjóðinn til Einars.
    Spurning hvort maður kíki í B/L og láti þá panta lykil til að klára þessi leiðindamál bara frá!
    En jú ókeytpis strætó á Akureyri er bara málið ;-)