Barnaföt og heimsóknir
Við Tryggvi vorum þokkalega dugleg um helgina, fannst okkur. Renndum í Teiginn á laugardag og áttum gott kvöld með gamla settinu og komum svo til baka í gær með bílinn fullan af barnafötum sem Edda hafði komið fyrir í vandlega merktum kössum úti í skúr. Ferðin gaf líka af sér ungbarnasæng sem reyndar þarf að senda í hreinsun. Eftir stutt stopp renndum svo við yfir til Dallas city að heimsækja Ömmu og Afa hans Tryggva.
February 9th, 2009 at 3:06 pm
Ég vissi að hún litla stystir hefði komið þessum fötum fyrir einhverstaðar!
February 13th, 2009 at 4:09 pm
Sú er orðin aldeilis myndarleg. Hann Jói afi þinn sagði að fátt væri fallegra en ófrísk kona. Gangi þér vel.
February 13th, 2009 at 5:08 pm
Já og miðað við þessa mynd þá myndi ég segja að fáar konur séu jafn fallegar ófrískar og hún Valdís systir mín