• Default
  • Foliage
  • Clouds
  • Flokkar

  • Eldri færslur

Fleiri bumbumyndir

Erfinginn virðist hafa verið alveg úrvinda eftir tónleikana á laugardagskvöldið. Hann hafði sig allavegana töluvert til hlés á sunnudag og mánudag, hvíldi sig og lét lítið fara fyrir sér. Í dag var síðan tekið á því, mikið sparkað og iðað í allan dag. Greinilega ekki varanlegur skaði af því að hlusta smá á Naglbítana.
Tryggvi skaut síðan af mér nokkrum bumbumyndum áðan. Þetta er allt að verða nokkuð myndarlegt. Það má smella á myndina til að sjá fleiri.

Printed from: http://www.valdisbjork.com/archives/2009/02/fleiri-bumbumyndir/ .
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.

8 Comments  

  • mamma says:

    Nú fer kúlan að síga aðeins. En það eru aðeins 4 vikur eftir. Maður er að verða spenntur.

  • Valdís says:

    Ert þú að verða spennt? Þú getur rétt ímyndað þér hversu spennt við Tryggvi erum ;-)

  • Elva says:

    Spennt? Ég man nú meira eftir annarri tilfinningu en spennu á þessum seinustu vikum. En glæsileg kúla og vonandi jafnar erfinginn sig á þessu útstáelsi ykkar :)

  • mamma says:

    Ömmur verða spenntar alveg eins og tilvonandi foreldrar.

  • Edda Rós says:

    Vá flott kúla. Það merkilega er líka að núna virðist kúlan ekkert jafn rosalega stór einsog hún virkaði á seinustu myndum.
    Ég er líka spennt (og Hrafnkell, hahahaha)…

  • Valdís says:

    Það var annar toppur þá. Núna var sá toppur einhverstaðar lengst ofan í óhreinatauskörfu svo ég ákvað að nota þennan.

  • Já það er greinilega farið að styttast í nýja fjölskyldumeðliminn. Gangi þér vel :)

  • Valdís says:

    Takk fyrir það.

RSS feed for comments on this post