Fleiri bumbumyndir
Erfinginn virðist hafa verið alveg úrvinda eftir tónleikana á laugardagskvöldið. Hann hafði sig allavegana töluvert til hlés á sunnudag og mánudag, hvíldi sig og lét lítið fara fyrir sér. Í dag var síðan tekið á því, mikið sparkað og iðað í allan dag. Greinilega ekki varanlegur skaði af því að hlusta smá á Naglbítana.
Tryggvi skaut síðan af mér nokkrum bumbumyndum áðan. Þetta er allt að verða nokkuð myndarlegt. Það má smella á myndina til að sjá fleiri.

February 25th, 2009 at 4:50 pm
Nú fer kúlan að síga aðeins. En það eru aðeins 4 vikur eftir. Maður er að verða spenntur.
February 25th, 2009 at 5:58 pm
Ert þú að verða spennt? Þú getur rétt ímyndað þér hversu spennt við Tryggvi erum
February 25th, 2009 at 7:54 pm
Spennt? Ég man nú meira eftir annarri tilfinningu en spennu á þessum seinustu vikum. En glæsileg kúla og vonandi jafnar erfinginn sig á þessu útstáelsi ykkar
February 25th, 2009 at 11:05 pm
Ömmur verða spenntar alveg eins og tilvonandi foreldrar.
February 26th, 2009 at 2:53 pm
Vá flott kúla. Það merkilega er líka að núna virðist kúlan ekkert jafn rosalega stór einsog hún virkaði á seinustu myndum.
Ég er líka spennt (og Hrafnkell, hahahaha)…
February 26th, 2009 at 3:05 pm
Það var annar toppur þá. Núna var sá toppur einhverstaðar lengst ofan í óhreinatauskörfu svo ég ákvað að nota þennan.
March 3rd, 2009 at 8:42 am
Já það er greinilega farið að styttast í nýja fjölskyldumeðliminn. Gangi þér vel
March 3rd, 2009 at 10:18 am
Takk fyrir það.