Síðustu vikur

Já, það er allt á fullu. Við Tryggvi höfum undanfarið sótt námskeið um það hvernig við verðum foreldrar (áherslan á verða, þ.e. meðgöngu, fæðingu og fyrstu daga barnsins, frekar en vera, þ.e. uppeldi og áherslur seinna meir), ég hef farið í meðgöngusund og Tryggvi á fullu í ræktinni, og bæði haft helling að gera í vinnunni.
Um helgina bakaði ég vatnsdeigsbollur sem við höfum bæði verið að vinna okkur samviskusamlega í gegnum, við fórum í útskriftarveislu og svo fórum við á tónleika með 200.000 Naglbítum á laugardagskvöldið. Það reyndist vera hin besta skemmtun og mjög gaman að hitta helling af fólki sem við höfðum ekki hitt lengi. Erfinginn kvartaði smávegis yfir skorti á svefnfriði á tónleikunum, en það var ekkert óviðráðanlegt.

2 Responses to “Síðustu vikur”

  1. Hafdís Says:

    Verður ekki að hefja gott tónlistaruppeldi snemma hvort eð er?

  2. Valdís Says:

    Jú, það held ég. Finnst samt alltaf frekar fyndið þegar fólk er að spila Mozart eða eitthvað slíkt fyrir börnin sín í móðurkviði. Held ekki að ég gæti þekkt neitt eftir meistarana ef ég heyrði það gegnum húð, fitu, vöðva og bein og með eyrun full af vökva.