Allt í undirbúningi
Já, við Tryggvi erum óðum að gera allt klárt fyrir erfingjann. Nú er búið að:
- sækja vögguna og rimlarúm ofan af háalofti í Hafnarstrætinu og koma þeim í sprautun í Teignum.
- fá barnavagn að láni.
- kaupa skiptiborð (vantar reyndar skiptidýnu, hvar kaupir maður svoleiðis?)
- panta taubleyjur frá USA (með milligöngu Elvu systur).
- sækja barnaföt úr bílskúrnum í Teignum og þvo vél eftir vél af þeim.
- fá ungbarnasæng (30 ára gamla) heiman úr Teignum og láta fatahreinsun ná úr henni 20-30 ára gömlum pissublettum.
- kaupa eitt stykki gjafabrjóstahaldara (þarf eflaust fleiri fljótlega).
- kaupa prentara svo hægt sé að prenta út jafnóðum myndir af dýrgripnum.
Annars er allt gott að frétta. Barnið er búið að skorða sig og nú er komin vika 37 svo að ef það fæddist bara í dag, það myndi það ekki teljast sem fyrirburi. Eftir tvær vikur förum við Tryggvi svo bæði í fæðingarorlof.
Jæja, tónleikar með Hálfvitunum í kvöld. Við sjáum til hvort barninu líkar betur við tónlistina þeirra eða Naglbítanna.
March 6th, 2009 at 7:32 pm
Hæ Valdís
Gangi þér vel á síðustu metrunum - allt að smella saman greinilega!
Kíki stundum hingað inn, skal reyna að taka mig á í kvitteríinu
Kveðja úr Kalíforníu
Hulda Ösp
March 6th, 2009 at 8:28 pm
Er sængin ekki 34 ára? Er bara að pæla. En ef hún er það þá eru pissublettirnir ekki tilkomnir fyrr en eftir 11. ágúst 1978 því ég gerði ekki svoleiðis, held ég
Er búin að send pakkann. Vonandi þurfa tollarnir ekki að skoða hann í hengla.
March 6th, 2009 at 9:11 pm
Sængin var keypt fyrir Valdísi og valdi Elva stóra systir hana. Sá gamli er kominn út í bílskúr í vögguvinnu.
March 7th, 2009 at 2:37 pm
Ah, já, ég “man” það núna
March 7th, 2009 at 4:20 pm
Og svo var tekið villt dugnaðar- og þrifakast, þetta er rosalegt alveg hreint.
March 7th, 2009 at 4:36 pm
Hurru það ætti að vera skiptidýna í teignum, ég er eiginlega alveg viss um það.
Einnig er ekkert svo erfitt að græja venjulega brjóstahaldara sem gjafahaldara ef þú átt erfitt með að finna góða gjafahaldara.
March 7th, 2009 at 4:37 pm
Já svo ætlaði ég að benda þér á að skoða brjóstagjafapúða, ég bjó til einn sem var ekkert ofurgóður en ég er viss um að það sé gott að eiga svoleiðis grip.
March 7th, 2009 at 9:38 pm
Pabbi ykkar er bæuinn að finna barnabaðið úr kommóðunni en þar er ekki skiptidýnan. Hvar heldur þú að hún sé?
March 7th, 2009 at 9:38 pm
Pabbi ykkar er búinn að finna barnabaðið úr kommóðunni en þar er ekki skiptidýnan. Hvar heldur þú að hún sé?
March 8th, 2009 at 10:03 am
Well hún kom ekki með okkur. Við skildum örugglega allt barnadót eftir hjá ykkur, en það er svosem fræðilegur möguleiki að hún sé hjá landis - en ég er eiginlega alveg viss um að barnadótið fór í teiginn. Þannig að þetta er hið undarlegasta mál
March 9th, 2009 at 8:55 am
Á skiptidýnu sem þú getur fengið lánaða ef þú vilt.
Brjóstagjafapúði er nauðsynlegur, fékk svoleiðis lánaðan og notaði hann mikið (svo er voða gott að nota hann þegar maður prjónar)
Gangi ykkur vel á lokasprettinum.
Kv.
Þ
March 11th, 2009 at 9:02 pm
ég á skiptidýnu sem þú mátt fá lánaða Valdís.