Barnaspeki

Ég keypti bakka af páskaeggjum nr. 1 frá Nóa í gær og maulaði eitt yfir tölvuleik sem ég var að spila. Málshátturinn var: „Barnalán er betra en fé.“ Nokkuð viðeigandi. Svo laumaði ég mér í annað þegar ég horfði á House aðeins seinna um kvöldið. Málshátturinn: „Bundinn er sá sem barnsins gætir.“ Eitthvað þema í gangi?

One Response to “Barnaspeki”

  1. Edda Rós Says:

    Nói hefur alltaf verið sannspár í sínum málsháttum… Eftirminnilegir sem ég hef fengið eru “bylur hæst í tómri tunnu” og “vín skal til vinar drekka”