Hjálmarnir

Við Tryggvi gáfumst upp á Hjálmatónleikum áðan. Eflaust voru Hjálmarnir sjálfir ágætir, en því miður voru áheyrendur ekki alveg á réttum kalíber. Við mættum þokkalega tímanlega, að okkar mati, en náðum sætum úti í horni nálægt innganginum. Nokkuð inn í tónleikana gáfumst við upp, þegar það lagðist á eitt að við heyrðum varla tónlistina fyrir kjaftagangi allstaðar í kringum okkur, sáum ekki hljómsveitina fyrir fólki sem stóð á fáránlegum stöðum (þetta áttu jú að vera sitjandi tónleikar) og svo var mér farið að verða flökurt út af reyknum sem barst inn um dyrnar. Það endaði þannig að við stungum af.
Annars tók Tryggvi nokkrar myndir áður en við fórum af stað.

2 Responses to “Hjálmarnir”

  1. mamma Says:

    Hvernig er þetta, heldur barnið að það eigi að vera þarna inni í ár? Það veit ekki að það eru allir tilbúnir til að dáðst að því.

  2. Edda Rós Says:

    Við Hrafnkell erum með þetta á hreinu, það er nefnilega svo vont veður úti en barnið vill bara halda sig í hlýjunni ;-)