• Default
  • Foliage
  • Clouds
  • Flokkar

  • Eldri færslur

Kríli… nei, aldeilis ekki!

Það var mæðraskoðun í morgun. Ljósan potaði í barnið, hlustaði, mældi blóðþrýsting hjá mér og legbotnshæðina og lýsti svo yfir að hún ætlaði að senda mig í vaxtasónar! Fannst bumban of stór og stækka of hratt, sérstaklega miðað við það að ég er ekki að þyngjast svo hratt, stóð meira að segja í stað milli vikna núna. Þannig að við erum á leiðinni í sónar á mánudaginn. Það er greinilega algjör óþarfi að vera eitthvað að tala um kríli hér á bæ.
Nú er allt að skríða saman, verða tilbúið fyrir barnið. Pabbi er á fullu að gera vögguna fína og flotta, hann og Mamma komu með þessa líka fínu kerru handa okkur í síðustu viku (græn og fín, á eftir að setja inn myndir) og pakkinn með bleyjunum frá Bandaríkjunum kom í gær. Erfinginn getur þá glaður og sæll pissað og kúkað í fínar taubleyjur í allskonar litum.

Printed from: http://www.valdisbjork.com/archives/2009/03/krili-nei-aldeilis-ekki/ .
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.

1 Comment  

  • mamma says:

    Krílið ætti að drífa sig í heiminn fyrir mánudag svo að það sé hægt að sleppa þessum sónarmyndatökum. Það er miklu skemmtilegra að láta dáðst að sér live. Ég tala ekki um allt liðið sem býður spennt eftir dýrgripnum. Það á líka að vera skynsamt eins og foreldrarnir og drífa sig í að vera settinu til skemmtunar ALLT fæðingarorlofið. Það getur haldið áfram að stækka úti í henni veröld, það er ekkert pláss lengur þarna inni.

RSS feed for comments on this post