• Default
  • Foliage
  • Clouds
  • Flokkar

  • Eldri færslur

Kríli?

Jamm, kríli. Við renndum í vaxtasónar í morgun og barnið var mælt fram og til baka. Ragnheiður læknir lýsti því yfir að það væri svona 14-15 merkur núna, gæti orðið 16-17 við fæðingu. Ekkert stress.
Ég var líka sett í mónitor og það var reyndar frekar skemmtilegt að heyra hvernig hjartslátturinn í barninu hraðaðist þegar það byrjaði að sparka. Frekar fyndið að fylgjast með mónitornum á fleygiferð þegar barnið sparkaði í hann.

Printed from: http://www.valdisbjork.com/archives/2009/03/krili/ .
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.

7 Comments  

  • Edda Rós says:

    14-15 merkur eru sko ekkert kríli! Það er sko töluvert þyngra en frændur þess voru ;-) (en vá hvað manni á eftir að finnast það lítið samt)

  • Elva says:

    Já, þetta er mun meiri bógur en þeir frændur! :)

  • Já við erum nú líka svo stór bæði tvö að það skýrir þetta auðvitað ;) Vorum þó bæði 16 merkur við fæðingu þannig að það er ekkert ólíkleg tala.

  • Valdís says:

    Mig langar bara síður að það verði af stærðargráðunni 19-20 merkur… ég er náttúrulega bara byrjandi í þessu ;-)

  • Edda Rós says:

    Iss mér skillst að það sé ekkert endilega þyngdin sem hefur mest áhrif á það hversu erfitt er að koma barninu út. Sum börn eru pínulítil en þrjóskari en allt (haha en ekki þrjóskari en mamman) einsog Hrafnkell Myrkvi. Önnur börn eru risastór og koma út án þess að rífa og tæta eða vera með annað vesen.
    Í fyrsta lagi skiptir mestu máli að krakkinn fari rétt og rétta leið (og það virðist vera að vinna rannsóknarvinnuna sína í þeim málum) og í öðru máli er það höfuðstærðin og hún hefur örugglega meira að gera með lengd barnsins heldur en hversu mikið það hefur hlaðið utan á sig ;-) Í þriðja lagi þá mun þetta allt ganga einsog í sögu (amk þangað til að annað kemur í ljós) hvort sem að barnið verður 13 merkur eða 23 merkur…

  • Edda Rós says:

    haha já og þegar ég var að tala um Hrafnkel þá ætlaði ég að minnast á að hann var að þrjóskast við að reyna að snúa eitthvað vitlaust á leiðinni út.

  • Þórdís says:

    Sum börn eru bara ekki alveg til í að koma úr hlýjunni þó mamman sé að reyna að henda þeim út. Minn þrjóskaðist við í þó nokkuð marga tíma þótt hann hefði verið í minna lagi og snúið rétt.
    Best er að vera bara ótrúlega jákvæður og þá gengur allt betur.
    Gangi ykkur vel.
    Kv.
    Þ
    p.s. veit um eina sem var 18 merkur þegar hún fæddist, hún er ennþá 18 merkur, tæpum 30 árum síðar. :D

RSS feed for comments on this post