Letikast
Ég trúi því varla hvað við Tryggvi náðum massívri letihelgi! Sváfum, lágum í leti, horfðum á sjónvarp og spiluðum tölvuleiki eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ætli þetta verði ekki síðasta svoleiðis helgin sem verður möguleg í bili?
Ég trúi því varla hvað við Tryggvi náðum massívri letihelgi! Sváfum, lágum í leti, horfðum á sjónvarp og spiluðum tölvuleiki eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ætli þetta verði ekki síðasta svoleiðis helgin sem verður möguleg í bili?
March 16th, 2009 at 11:42 am
Enjoy enjoy…
March 16th, 2009 at 11:55 am
Auðvitað getið þið gert þetta líka eftir að barnið er komið í heiminn. Það væntanlega sefur meirihluta sólarhringinn. Það eru engin eldri systkini sem þarf að hugsa um líka og þið eru tvö með barnið. Þetta er nú ekki eins og það sé full vinna að hugsa um eitt kornabarn.
March 16th, 2009 at 2:21 pm
7-9-13
En, jújú, þið náið að mesta lagi 1 svona helgi í viðbót þangað til 2027! Ég hef td ekki getað slakað á ennþá. Magni er svo erfiður…*Hóst*
March 17th, 2009 at 1:56 pm
Mamma það er nú alveg happa glappa hvort að barnið sefur allan sólarhringinn eða ekki, ég man td mjög takmarkað eftir fyrstu 4 mánuðunum með Hrafnkel, þeir eru eiginlega allir bara í einhverri undarlegri móðu. Það getur alveg verið full vinna að hugsa um eitt kornabarn. Það getur meira að segja verið meira en full vinna…
En auðvitað verður ykkar barn ljúft einsog lamb, það á eftir að sofa 80% af sólarhringnum og þess á milli brosir það spekingslega meðan það leysir jöfnur, gerir bókhaldið og drekkur…
March 17th, 2009 at 2:49 pm
Það er önnur heilög þrenning en mér var sagt frá í gær: Kúka borða sofa
March 18th, 2009 at 9:44 am
Mér líst vel á þessar spár hennar Eddu um hegðun barnsins. Ég er viss um að þær ganga eftir