Einn, tveir og af stað!
Í kvöld fer ég í gangsetningu niðri á sjúkrahúsi. Tryggvi kemur í fyrramálið og verður með þegar fæðingin fer svo almennilega af stað. Það verður ágætt að ná að klára þetta dæmi, við erum farin að hlakka frekar mikið til að fá að hitta þessa þrjóskukind sem er búin að láta bíða svona eftir sér.
Við fórum annars í Hrísateiginn í fyrradag og áttum nokkuð góðan dag. Hittum þar Eddu og Hrafnkel og gátum á endanum fengið hann til að þora að snerta bumbuna. Hann ætlaði ekki að þora því alveg strax, hann hafði nefnilega heyrt af því að svona litlubörn í bumbum ættu það til að sparka og hann vildi ekki láta sparka í sig. Hann var samt ferlega upprifinn yfir því að finna smá spark þegar hann loksins þorði.
Við reiknum með að dagurinn á morgun fari í það verkefni að koma þessu blessaða barni í heiminn og á meðan verður sennilegast skorið á vel flestar samskiptaleiðir, ef ekki allar. Þegar eitthvað verður að frétta þá sendum við út boð til helstu hagsmunaaðila og vonumst til að þau verði látin ganga.
April 6th, 2009 at 8:47 pm
Þá sjáum við þig ekki fyrr en eftir burð. Gangi þér vel og mundu að þetta er örstutt stund en á eftir kemur alveg ótrúleg hamingja.
April 6th, 2009 at 9:31 pm
Gangi ykkur vel
Við fórum í gangsetningu á fimmtudaginn var, að morgni og vorum komin með heilbrigðan strák í heiminn kl 18.
April 6th, 2009 at 10:57 pm
Ekki það svosem að þú verður farin á spítalan þegar ég skrifa þetta, en gangi ykkur vel, sendi hlýja strauma.
April 6th, 2009 at 11:45 pm
Ég verð með hugann við ykkur (og þá sérstaklega þig). Ég segi bara það sama og mamma; þetta tekur á en afraksturinn er margfallt þess virði .*
April 8th, 2009 at 1:22 pm
Til hamingju með strákinn:)
April 8th, 2009 at 2:16 pm
Til lukku með lillamann, ég meina stóra strákinn. Gangi ykkur öllum vel.