• Default
  • Foliage
  • Clouds
  • Flokkar

  • Eldri færslur

Enn á sjúkrahúsinu

Já, það hefur ýmislegt gengið á undanfarna daga. Við mættum á mánudag í gangsetninguna og ég fékk fyrsta stílin til að setja allt af stað. Á þriðjudagsmorgun var bætt við allskonar ráðum til að koma hlutunum í gang, fyrst annar stíll, svo drip í æð og loks voru sprengdir belgirnir. Yfir daginn komu töluverðir verkir en þrátt fyrir þá náðust aldrei meira en fjórir í útvíkkun.
Um sexleitið var síðan orðið útséð að þetta væri ekki að ganga, dripið var komið í hámark og úrræðin að þrjóta. Þá var tekin sú ákvörðun að við færum í keisara og eftir það gengu hlutirnir frekar hratt. Ég var undirbúin fyrir skurð og trillað með okkur niður á skurðstofu, þar var skellt í mænudeifingu þar sem ég var lömuð fyrir neðan mitti og áður en ég vissi af eiginlega var búið að skella upp skilrúmi og skera barnið úr mér. Ég var að sjálfsögðu oh-so-gracefull, ældi í poka á meðan ég heyrði erfingjann hefja upp rödd sína í fyrsta skipti (hann var reyndar ennþá hálfur inni þegar hann byrjaði að tjá sig). Þá var mér tilkynnt að þetta væri strákur. Stór strákur. Tryggvi fékk að fara með stráknum til barnalæknisins í skoðun á meðan ég var saumuð saman. Þeir komu svo aftur og við fengum að dást að syninum í smá stund þangað til Tryggvi og sonur fóru upp á fæðingardeild en ég fór yfir í vöknun í ýmiskonar eftirátékk. Þeir komu svo til mín stuttu seinna og við prófuðum brjóstagjöf og dáðumst auðvitað að syninum. Við athugun kom í ljós að mér hafði blætt töluvert og þá tók við töluvert vesen við það að moka hálfstorknuðu blóði út úr leginu. Verð að viðurkenna að ég hafði ekki svakalegt gaman af þeim aðförum. Þetta leiddi samt til þess að ég fékk að eyða fyrstu nóttinni í lífi sonar míns á vöknunardeildinni þar sem var potað í mig á hálftíma fresti, en Tryggvi og keisarinn fóru saman upp á fæðingardeild.
Núna erum við að takast á við nokkur verkefni. Strákurinn taldist anda undarlega svo að honum var skúbbað yfir á barnadeild í rannsóknir og þar var hann settur í lyfjagjöf og hann hefur þurft að sofa þar undanfarnar nætur. Ég hef verið að skríða saman eftir skurðinn, var miskunnarlaust látin labba um gangana og nú er ég orðin nokkuð góð, enda eins gott fyrir allar ferðirnar okkar eftir sjúkrahúsinu endalöngu yfir á barnadeildina. Við höfum svo í sameiningu reynt að koma brjóstagjöf af stað. Tryggvi hefur tekið að sér upplýsingagjöf til umheimsins og stumrar í kringum okkur og passar að okkur vanhagi um ekkert.
Núna í nótt fær sá litli að vera hjá mér og á morgun kemur í ljós hvort hann er með sýkingu eða ekki og það ræður úrslitum um það hvenær við komumst heim. Ja, það og brjóstagjöfin, sem er ekki komin af stað ennþá.

Printed from: http://www.valdisbjork.com/archives/2009/04/enn-a-sjukrahusinu/ .
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.

4 Comments  

  • Kjartan S says:

    Gangi ykkur vel. Við Berglind hugsum til ykkar.

  • Elva says:

    Það hefur verið fylgst með ævintýrum ykkar með miklum áhuga hérna megin vatnsins. Vonandi hristir Sesar þessa sýkingu af sér í dag og þið náið að töfra fram mjólk, svo þið komist heim fyrir páska. Þessi fjárans mjólk hlýtur að láta sá sig (líklega með látum) á endanum. Ekki það að það eru til afbragðs mjólkurduft en sú mjólk er ekki til í eins handhægum pakkningum.
    Annars verð ég að segja að afkvæmið er að sjálfsögðu afar fagurt. Hæfilega sköllótt og þannig. Fannst vera Hrafnkels svipur af honum á einni mynd en við sjáum til hvað verður ;)

  • Kristbjörg says:

    Ég er búin að fara inn á síðurnar ykkar á hverjum degi, hef fylgst mjög vel með og reynt að senda ykkur góða strauma. Keisarinn sjálfur er yndislegur, og ég er viss um að þið fáið að fara heim fljótlega. Mamma hefur spurt eftir þér á hverjum degi og ég lofaði að segja þér að hún biði að heilsa. Ég hlakka til að hitta ykkur þegar við fáum boð um það. Gangi ykkur vel, held áfram að hugsa til ykkar og fylgjast með.
    Kristbjörg

  • Gerða says:

    Innilega til hamingju með drenginn. Gangi ykkur sem allra best. Kveðjur frá Hauganesi.
    Gerða og fjölskylda

RSS feed for comments on this post